151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[15:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fjallaði einmitt um það í 1. umr. við málið að þó að sagt sé að það þurfi að tryggja jafnt kynjahlutfall þá er ekki hægt að hafa það þannig að uppröðun hjá flokki A, sem velur sína fulltrúa í nefndir eftir sinni bestu kunnáttu og vitneskju o.s.frv., sé háð uppröðun einhvers annars flokks. Það getur komið þannig út að allir átta flokkarnir á þingi skipi bara konur eða bara karla í eina nefnd þingsins. Þá getur enginn bankað upp á hjá öðrum flokki og sagt: Væruð þið til í að skipa fulltrúa af öðru kyni í þessa nefnd? Ég vil bara vekja athygli á þessum galla, þegar verið er að nota orðalag eins og að tryggja þurfi jöfn kynjahlutföll, það er ekki hægt að tryggja það. Einn flokkur getur ekki skipað öðrum flokkum fyrir um skipan í nefndir þingsins. Þar eru takmörk þessa frumvarps í rauninni algerlega skýr. Því miður, og sem betur fer, ef þannig má orða það, af því að sjálfstæði og umboð hvers þingflokks, og þingmanna innan þess þingflokks, er að sjálfsögðu óháð umboði annarra. Hver þingmaður fyrir sig er bara með sitt sjálfstæða umboð og ekkert annað um það að segja, nema rétt hans til að sitja í nefndum þingsins. Ég vildi bara ítreka að þarna liggja mörkin í þessu frumvarpi og spyrja þá kannski: Væri hægt að velja annað orðalag en að tryggja þurfi jöfn kynjahlutföll, því að það er ekki hægt?