Þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Ég veit ekkert endilega hvort skipta þarf út þessu orði, tryggja. Í ljósi samhengisins sem það stendur í í frumvarpinu held ég það ekki. Það er alveg hárrétt að þetta er dálítið snúið þegar við stöndum frammi fyrir því að þingflokkar, eins og ég nefndi í ræðu minni áðan, geta að meiri hluta til verið skipaðir konum eða að meiri hluta til skipaðir körlum. Það er bara eitthvað sem við eigum að hafa til umhugsunar þegar við veljum lýðræðislega á lista hjá okkur. En ég held að við séum sæmilega vel gefið fólk upp til hópa og myndum setjast yfir það eins og gert var með fjárlaganefnd á sínum tíma. Þá var þessu velt upp, hvort hægt væri að breyta og annað slíkt. Umræðan er ólík í nefndum þegar bæði kynin koma að málum og það er gott ef við getum komið í veg fyrir að kynjahlutföllin séu ójöfn með samtölum þegar svona kemur upp á. Þegar það hefur gerst hefur verið rétt úr því að einhverju marki eins og kostur hefur verið. En það liggur í hlutarins eðli að það er ekki alltaf hægt. Sumir flokkar geta skipt fólki út, aðrir ekki, bara eftir því hvernig þeir eru samsettir. Ég myndi alltaf segja að við ættum að leggja okkur í líma við að reyna og sá flokkur sem er í bestum færum til þess á hverjum tíma ætti að reyna. Eins og ég nefndi áðan er þetta hægt og þarf að vera fortakslaust í nefndir utan þingsins, eins og hefur verið gert og við gerðum m.a. hvað varðar skipun í Seðlabankann, þar sem þingflokksformönnum tókst ágætlega til.