151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

þingsköp Alþingis.

80. mál
[15:46]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Birgir Ármannsson) (S):

Forseti. Það mál sem hér liggur fyrir hefur verið til nokkurrar umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég verð að geta þess að við 1. umr. málsins hér í þinginu lýsti ég yfir ákveðnum efasemdum um það og þær hafa ekki minnkað eftir yfirlegu í nefndinni, aukist ef eitthvað er. Ég vildi aðeins halda til haga nokkrum sjónarmiðum um málið sem slíkt.

Það má skipta efni málsins í tvennt og það er aðeins blæbrigðamunur á því hvernig málin eru hanteruð, annars vegar þegar kemur að kjöri í nefndir þingsins og hins vegar varðandi nefndir utan þings. Varðandi nefndir þingsins, fastanefndir, alþjóðanefndir og aðrar nefndir sem þingmenn skipa, innanhússnefndir ef við getum orðað það sem svo, liggur auðvitað fyrir að sú breyting sem boðuð er með frumvarpinu er í raun og veru ekki mikil. Ég ætla ekki að geta mér til um það hvers vegna þetta er lagt til en þegar ég segi að þetta sé ekki mikil breyting þá er það auðvitað þannig að reglan sem hér er lagt upp með verður ekki bindandi fyrir þingflokka þannig að ekki verður hægt að beita neinum þvingunum eða viðurlögum eða neitt slíkt ef ekki er kjörið í nefndir þannig að kynjahlutföll séu með þessum tiltekna hætti. Það er verið að mælast til þess að það sé notað sem vísiregla að svo verði. Það er verið að hvetja til þess að við kjör í nefndir í þinginu eigi að hafa þau sjónarmið í huga að kynjahlutföll verði sem jöfnust.

Það má spyrja: Af hverju er ég að þæfa eitthvað um það? Af hverju samþykki ég það ekki? Það er það sem þingflokksformenn hafa gert. Eins og kom fram hjá framsögumanni nefndarálitsins þá er þetta eitt af þeim sjónarmiðum sem haft er í huga þegar þingflokksformenn eru að stilla upp. Það hefur verið gert án þess að um það væri nokkuð skrifað í þingsköpum. Það hefur ekki þurft neitt ákvæði um það í þingsköpum til að þau sjónarmið væru höfð í huga við þá uppstillingu, ef svo má segja. Þingsköpin eiga að mínu mati að vera tiltölulega skýr. Þau eiga að hafa einhverjar skýrar lágmarksreglur. Ef menn vilja koma sér saman um eitthvað annað, umfram það sem beinlínis er kveðið á um í þingsköpunum, eiga menn að geta gert það. Það á ekki að fylla þingsköp af greinum þar sem er hvatning til að gera hitt og þetta sem er síðan ekki bindandi. Þetta finnst mönnum kannski full rúðustrikað viðhorf af minni hálfu en ég get eiginlega ekki verið samkvæmur sjálfum mér nema halda þessu sjónarmiði á lofti.

Það er jákvætt og ágætt umhugsunarefni fyrir þá sem eru að stilla upp fyrir hönd þingflokkanna, þegar verið er að kjósa í nefndir, að gæta kynjasjónarmiða en það að vera með hvatningu til þess í þingsköpunum finnst mér eiginlega óþarfi. Og reyndar finnst mér mörg önnur ákvæði 14. gr., sem fjallar um nefndarkjörið, alveg mega missa sín og það skýrir breytingartillögunnar sem ég mæli hér fyrir á eftir. Með sínum hætti á það sama við um kjör í nefndir utan þingsins. Þar sem það verkefni kemur yfirleitt í hlut þingflokksformanna að gera tillögur um einstaklinga sem kjósa skal í nefndir utan þingsins þá hefur þetta verið rætt og eins og hv. framsögumaður nefndarálitsins vísaði til hefur það leitt til breytinga á tillögum að kynjahlutföll, eins og þau hafa komið frá einstökum flokkum, hafa verið verulega skökk. Þetta sjónarmið hefur verið haft í huga, jafnvel þó að ekki hafi verið um neina lagaskyldu til þess að ræða og ég held að það sé ágætt að hafa það með þeim hætti áfram. Ég held raunar að öll þróun sé í meginatriðum á þá leið að kynjakvótar, eins og þarna er lagt upp með, hljóti smám saman að vera á útleið eftir því sem hlutur kvenna í hinum fjölmörgu verkefnum samfélagsins fer vaxandi. Ég held að það þurfi enginn að velkjast í vafa um það. Jafnvel þó að tímabundið bakslag hafi orðið í kynjahlutföllum á Alþingi í kosningunum 2017 þarf enginn að velkjast í vafa um að staðan í þeim efnum er allt önnur í dag en hún var fyrir 20, 30 eða 40 árum. Ég held að sú þróun muni halda áfram og ég held að sú þróun haldi líka áfram varðandi kjör í nefndir í þinginu og kjör í nefndir utan þingsins.

Mér finnst svo mörg önnur sjónarmið en kyn þeirra sem kjörnir eru nefndir eiga að hafa vægi þegar kemur að þessu vali, hvort sem það er í nefndir innan eða utan þings. Það er auðvitað eðlilegt í nefndum sem hafa skýrt pólitískt hlutverk að hlutföll flokka séu þar ráðandi. Það er líka eðlilegt, eins og kom fram í samtölum hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar og Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur hér áðan, að flokkarnir séu sjálfráðir um það hvaða tillögur þeir gera um einstaklinga í slíkar nefndir. Það á ekki að vera hlutverk mitt sem formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins að segja við þingflokksformann Samfylkingarinnar: Þú mátt ekki gera tillögu um karlmann af því að Píratar gerðu tillögu um karlmann. Mér finnst það í raun og veru alveg fráleit staða að vera í. Ég hef lent í þeirri stöðu. Það hefur sem betur fer, þegar upp hefur komið, verið leyst í einhvers konar samkomulagi. Ég held hins vegar að það sé út í hött að vera með einhverjum hætti að lögbinda slíkt og gangi gegn því grundvallarprinsippi að flokkarnir séu nokkuð sjálfráða um það hverja þeir velji til trúnaðarstarfa af sinni hálfu.

Ég ætla ekki að fara nánar út í þetta, hæstv. forseti. Þarna mætast auðvitað ólík sjónarmið. Mér finnst kynjasjónarmið ekki vera þess eðlis að þau eigi að trompa öll önnur sjónarmið eins og manni finnst stundum gæta í þessari umræðu. Mér finnst að það sé gott og jákvætt ef flokkar geta komið sér saman um að tilnefna í nefndir eða ráð þannig að kynjahlutföll séu ekki skökk en mér finnst ekki ástæða til að kveða á um það í lögum. Ég velti því fyrir mér í nefndarstarfinu: Hvernig ætli standi á því t.d. að norrænu þingin hafa ekki gert þetta, hvernig ætli standi á því? Ætli það standi þannig á því að í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi séu karlrembusjónarmið ráðandi þannig að það hvarfli ekki að neinum að vera svo framsækin og jafnréttissinnuð að setja svona reglur? Nei, ég held að skýringin sé miklu frekar eðli þingsins sem vettvangs þjóðkjörinna fulltrúa sem koma úr ólíkum flokkum og vilja láta nefndarskipan endurspegla þá flokkaskipan. Ég held að það sé skýringin á því að Svíar, Danir, Finnar og Norðmenn hafa ekki sett svona reglu. Ég held að við ættum að velta því fyrir okkur — nú þurfum við auðvitað ekki alltaf að elta nágranna okkar, en af því að oft er horft til þessara landa, sérstaklega þegar kemur að jafnréttismálum — af hverju þau hafa ekki farið þessa leið. Mér finnst hafa skort svolítið á það að stuðningsmenn þessa máls velti því fyrir sér af hverju þessar þjóðir, sem alls staðar eru taldar vera í forystu í jafnréttismálum í heiminum, hafa ekki valið þessa leið. Ég skil þá spurningu eftir hjá hv. þingmönnum.

Varðandi þá breytingartillögu sem ég flyt, ásamt hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni, vil ég í stuttu máli velta því upp, fyrst farið er að velta fyrir sér skilyrðum nefndarkjörs í 14. gr. þingskapa, hvort ekki sé ástæða til að skera þær viðmiðanir sem þar eru töluvert niður og í raun og veru hverfa aftur fyrir þær breytingar sem gerðar voru á þingsköpum 2011 og miða bara við það að kosið verði í nefndir þingsins, og þá eftir atvikum nefndir utan þingsins, eftir hlutfallsreglu, samkvæmt 82. gr. þingskapa þannig að nefndirnar í þinginu endurspegli þingstyrk og eftir atvikum samstarf flokka eins og verið hefur. Stjórn kemur sér saman um lista, eða stjórnarandstaðan, sem kosið er eftir samkvæmt hlutfallskosningakerfi. Ég tel, hæstv. forseti, að það sé miklu hreinlegra að hafa þessa reglu einfalda og skýra. Það er bara kosið í nefndir eftir þessu hlutfallskosningafyrirkomulagi. Síðan, ef menn vilja koma sér saman um eitthvað annað, þá gera menn það bara. En það þarf ekki að tiltaka það neitt sérstaklega í þingsköpum.