151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[15:58]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er margt að fara yfir hérna. Ég velti fyrst fyrir mér breytingartillögum hv. þingmanns. Ef hverfa á aftur til þess sem var en ekki geta gengið út frá lögunum eins og þau eru varðandi samninga um það hvernig skipt er milli nefnda, milli stjórnar og stjórnarandstöðu, af hverju þá ekki að hafa það í lögunum? Við erum að glíma við mjög áhugavert orðalag í lögum þar sem ekki er hægt að hafa væntingar um að verið sé að fara eftir lögum. Maður getur áætlað sem svo að þarna úti finnist fólki að tryggja þurfi að konur séu að lágmarki 40% í nefndum þingsins, að fólk hafi þær væntingar að þingið fari eftir því. En það getur það ekki. Við höfum verið að reyna að útskýra hvernig fyrirkomulagið virkar hvað varðar sjálfstæði hvers þingflokks og í raun einstakra þingmanna. Ef við förum síðan í breytingartillögur eins og hv. þingmaður leggur til, að ekki sé gert ráð fyrir fyrst að semja um fjölda nefndasæta milli stjórnar og stjórnarandstöðu, að það sé ekki tiltekið, þá er í raun gengið út frá því að ríkisstjórnin taki sér bara þann fjölda nefndasæta sem hún þarf án nokkurs samkomulags. Ég hef velt því fyrir mér, eins og hv. þingmaður segir, að ef fólk vill semja um annað en stendur í þingskapalögum, af hverju þá ekki að hafa það þannig? Ef það eru ákveðnar væntingar um að fara eftir því viðmiði. Það er margt, bæði í frumvarpinu og í breytingartillögunni, sem er einhvern veginn pínulítið fram og til baka og ég átta mig ekki alveg á því hvar við lendum þegar báðar þessar breytingar eru komnar á sinn stað.