151. löggjafarþing — 88. fundur, 3. maí 2021.
Þingsköp Alþingis.
80. mál
Herra forseti. Til að gera langa sögu stutta þá gengur breytingartillagan sem ég flyt hér út á það að þingsköp kveði á um lágmarksreglu, sem felur í sér að kosið sé hlutfallskosningu í allar nefndir og ráð. Vilji menn semja um annað geta menn auðvitað gert það. En mér finnst ástæðulaust að hafa einhverjar leiðbeiningar eða tilmæli um það í þingsköpum ef það er hvort sem er ekki bindandi.