Þingsköp Alþingis.
Virðulegi forseti. Það er kannski einmitt vandamálið að það er orðað sem svo í breytingartillögunni að í hverja fastanefnd skuli kosnir níu þingmenn með hlutbundinni kosningu en í rauninni er ekki talað um fjölda nefndasæta í heild sinni. Þar liggur kannski skilningurinn á þessu atriði. Þar sem fjallað er um fjölda nefndasæta í heild sinni getur skiptingin orðið þannig, þegar litlu munar á þingmannafjölda stjórnar og stjórnarandstöðu, að ekki næst stjórnarmeirihluti í öllum nefndum sem leiðir þá til þess að stjórnin þarf að semja um að fá meiri hluta í öllum nefndum, það er kannski það sem togast aðeins á hérna.
Mig langar líka til að spyrja út í það sem hv. þingmaður nefndi, þ.e. að oft er horft til Norðurlandanna um ákveðna fyrirmynd, t.d. í jafnréttismálum o.s.frv. Viljum við ekki að horft sé til okkar? Ég heyri það mjög oft að við erum að monta okkur af því að vera elsta og virðulegasta þingið í heiminum o.s.frv. og fólk ætti að horfa til okkar með það. Mér finnst einhvern veginn að við séum hætt að tala um að fólk eigi að horfa til Íslands sem fyrirmyndar og að við séum alltaf að nefna Norðurlöndin og bíða eftir að þau geri eitthvað áður en við þorum að hreyfa legg eða lið.