Þingsköp Alþingis.
Hæstv. forseti. Nú held ég að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson sé of fastur í núverandi nefndakjöri. Það sem breytingartillagan sem ég legg fram felur í sér er að það sé í raun og veru búið að skera burtu 14. gr. að stórum hluta eins og hún lítur út í dag og eftir standi bara kjör í hverja þingnefnd fyrir sig sem gerir það að verkum að stjórnarmeirihluti sem vill beita fullri hörku getur gert það varðandi kjör í hverja einustu nefnd en það hefur ekki í sér fólgin einhver tilmæli um að fara einhverja aðra leið ef samkomulag næst eða eitthvað þess háttar. Vilji menn ná samkomulagi geta menn auðvitað gert það þegar verið er að stilla upp á lista í einstakar nefndir, hvort sem það er út frá kynjasjónarmiðum, sjónarmiðum um stjórnarandstöðu eða stjórn eða um þingmann utan af landi í þessa nefnd eða hina eða eitthvað þess háttar, menn geta haft alls konar sjónarmið uppi. En mér finnst alveg ástæðulaust að vera að tiltaka í þingskapaákvæðinu óbindandi tilmæli um eitthvað slíkt. Það er eiginlega hugsunin sem ég er að reyna að koma til skila, hvernig svo sem það gengur. Varðandi tilvísunina til Norðurlandanna var ég ekki að segja, og má ekki misskilja orð mín svo, að við þurfum að bíða eftir Norðurlöndunum. Ég bara vildi nota þetta dæmi til að vekja hv. þingmenn til umhugsunar um það að þessi tillaga, eins og hún liggur hér fyrir af hálfu forsætisnefndar, á sér ekki fordæmi eða fyrirmynd í þeim löndum sem eru talin hafa verið fremst á þessu sviði. Það er út af einhverju. Það er út af einhverju, held ég, sem það er. Það er vegna hins sérstaka eðlis (Forseti hringir.) þjóðkjörinnar samkomu þar sem ólíkir flokkar koma saman og þurfa að tilnefna sína fulltrúa.