Þingsköp Alþingis.
Forseti. Smá framhald af þeirri ræðu sem ég hélt hér í 1. umr., til að reyna að útskýra af hverju þetta er alveg ágætisviðmið að hafa og gott að setja fram án þess að hægt sé að framfylgja því. Áhyggjurnar sem ég hef í tengslum við það eru einmitt þær að væntingar okkar, um að farið sé eftir lögum, geti búið til óraunhæfar væntingar. Ef það stendur í lögum að að lágmarki eigi 40% nefndarmanna að vera konur — miðað við breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar, að taka eigi tillit til allra kynja — skapar það væntingar sem ekki er hægt að fara eftir. Þegar það gerist ekki, út af alls konar ástæðum, sem við höfum reyndar farið yfir, bæði í andsvörum áðan og í 1. umr., þá skapast frekar ósanngjörn krafa á einhvern flokk sem augljóslega gæti svissað tveimur aðilum úr tveimur nefndum til þess að allt myndi líta fullkomlega út. Þá yrði sá flokkur kannski eins konar blóraböggull fyrir það að vera ekki að fara eftir lögum sem væri bara alls ekkert sanngjarnt. Það gætu verið fleiri flokkar, þó að þetta væri einfaldasta leiðin, sem gætu eftir einhverjum leiðum uppfyllt lögin. Ég á í smávandræðum með að setja eitthvað svona í lög sem skapar væntingar um að farið sé eftir lögum sem að öllum líkindum raungerist ekki sjálfkrafa á næstu misserum, því miður. Vonandi gerist það en ég myndi giska á að þetta myndi ekki falla fullkomlega að lögunum þó að mögulega væri það kannski hægt. Það eru kannski erfiðustu aðstæðurnar þegar það er hægt en gerist ekki. Hvað þá? Eigum við ekki að fara eftir lögum, alla vega eru þær kröfur gerðar, myndi ég segja, og þegar þetta stendur þarna standa líka væntingar til þess fyrir utan þingið. Maður myndi sjá kvörtun koma til okkar: Vinsamlegast farið eftir lögum. Við þekkjum öll hvernig svoleiðis umræða getur farið af stað.
Ég vil bara hafa það algerlega skýrt hvað þetta varðar að þetta er lagasetning sem býr til viðmið en einhvern veginn ekki lög sem þarf að fara eftir. Mér finnst það pínu ankannalegt, ég get alveg kvittað undir það með þeim fyrirvara að einungis sé um viðmið að ræða en það er ansi stórt viðmið fyrir aðra kannski. Það er bara mín sannfæring og samviska sem gerir grein fyrir atkvæðinu þegar ýtt er á takkann varðandi þetta frumvarp, en það verða samt lög þegar allt kemur til alls ef þetta fer í gegn svona.
Þar kem ég aðeins að hæfileikum til að gegna nefndastörfum. Mér finnst mikilvægt að fara aðeins yfir hlutverk þingmanna bara almennt séð hér á þinginu. Við eigum að reikna með því að jafnaði að þingmaður sé ekki sérhæfður til að gegna neinu hlutverki í nefnd eða á þingi. Ekki eru gerðar neinar hæfniskröfur til þingmanna nema einfaldlega að vera kosnir og síðan að fylgja eigin sannfæringu. Það þýðir óhjákvæmilega að þegar þingflokkar og þingmenn velja sér hlutverk — ég myndi vilja vera í fjárlaganefnd eða í allsherjar- og menntamálanefnd eða eitthvað svoleiðis — er einn þingmaður ekki betri en annar til að sitja í einstaka nefndum. Hann er það einfaldlega ekki af því það er ekki nein hæfniskrafa þar á bak við. Í raun og veru gæti einhver tvímælalaust verið hæfari en annar, ég ætla ekki að þræta fyrir það, að sjálfsögðu. En það er ekki gert ráð fyrir því. Það er gert ráð fyrir því að hver sem er geti komið og sest í stól í nefndum og sinnt því starfi jafn vel og allir aðrir, nægilega vel alla vega, því að eina hæfniskrafan er sannfæring þingmannsins þegar allt kemur til alls. Það byggist ekki á menntun eða neinu öðru. Það byggist einfaldlega á umboðinu frá kjósendum.
Þegar allt kemur til alls segir enginn þingmanninum hvernig hann eigi að beita sannfæringu sinni eða samviskusemi. Þingmaðurinn sjálfur stendur fyrir skoðun sinni og sannfæringu. Mér finnst það áhugavert, út frá umræðunni sem myndast hefur í þessu máli, að fólk hefur ýjað að því að vissulega velji þingmenn sér eftir áhugasviði að starfa í ákveðnum nefndum. Sumir séu betur til þess fallnir að sitja í efnahags- og viðskiptanefnd, séu t.d. með viðskiptamenntun eða eitthvað svoleiðis, eða í fjárlaganefnd þar sem mikið er unnið með tölur o.s.frv. En það á ekki endilega að gera þingmann að betri nefndarmanni þegar allt kemur til alls því að stuðningurinn sem við eigum að fá í störfum okkar, sem stjórnarmenn í nefndastörfum hér á þingi, á að vera óháður okkar eigin hæfileikum. Við bætum þeim að sjálfsögðu við. En við eigum að geta sinnt starfinu óháð bakgrunni, í hvaða nefnd sem er, í hvaða þingstörfum sem er. Það er einfaldlega það sem gengið er út frá í stjórnarskránni. Það eru ekki gerðar neinar hæfniskröfur og mér finnst það aðeins hafa áhrif á þetta mál, alla vega viðhorf okkar gagnvart því, að það á enginn rétt á því að sitja í efnahags- og viðskiptanefnd af því að hann er viðskiptafræðingur eða hagfræðingur eða eitthvað því um líkt. Það gerir viðkomandi ekki sjálfkrafa betri til að sinna þeim nefndastörfum því að útgangspunkturinn á að vera að allir eiga að geta sinnt þessum störfum.
Ég vildi bara vekja athygli á þessu atriði hvað þingmannsstarfið varðar. Við öðlumst vissulega ákveðna reynslu og höfum áhuga á mismunandi málum og þess háttar en þegar allt kemur til alls þá eru það ekki hæfileikar okkar eða reynsla sem skipta máli í þing- eða nefndastörfum heldur sannfæring okkar. Hún á að geta verið óháð öllu öðru, að sjálfsögðu. Við viljum óháðar niðurstöður. Við viljum niðurstöður þar sem fólk tekur afstöðu til sérfræðiálita sem berast með allri þeirri hjálp sem viðkomandi þarf til að taka upplýsta afstöðu og til að sannfæra sjálfan sig um að eitt sjónarmið sé mikilvægara en annað. Það er það sem þingmannastarfið snýst um þegar allt kemur til alls, að meta hvaða sjónarmið hverjum þingmanni fyrir sig persónulega finnst vera mikilvægari en önnur, í hvaða máli sem er, í hvaða nefnd sem er og almennt séð. Við erum að velja fólk á þing sem tekur þannig ákvarðanir út frá sannfæringu sinni.