Þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Það er kannski tvennt í þessu. Annars vegar er ég alla vega að hluta til sammála hv. þingmanni um það að þegar verið er að velja í nefndir þingsins eiga allir þingmenn að geta sest í hvaða nefnd sem er. Það sem gerist í nefndunum er ekki meira bindandi en svo að allar ákvarðanir nefnda sæta síðan endurskoðun í þingsal þar sem allir þingmenn koma að verki. Í raun og veru snýst nefndastarfið því um ákveðið hagræði og um ákveðið vinnulag frekar en hinar endanlegu ákvarðanir sem teknar eru. Það er ágætt að hafa þetta í huga, líka þegar við veltum þessu máli fyrir okkur.
Það er ekki eins og stundum er látið í veðri vaka, einkum af fólki utan þings, að það felist í því heiður eða forréttindi fyrir þingmenn að sitja í þessari nefnd eða hinni. Það er ekki þannig í okkar veruleika hér í þinginu. Við erum að drukkna í nefndastörfum allan tímann og ég held að flestir þingmenn sem ég þekki vildu gjarnan vera lausir við einhver nefndastörf frekar en að bæta á sig ef út í það er farið. Ég vil hins vegar samt halda því til haga að vegna þess að nefndastörfin snúast um vinnulag og hagræði í vinnu þá er töluvert hagræði af því fyrir þá flokka sem eiga sæti á þingi að setja þá til verka í nefndum sem hugsanlega hafa mestan áhuga eða hæfileika á því sviði sem um ræðir hverju sinni. Það er ekki alltaf hægt. En það er hins vegar einn af þeim þáttum sem hlýtur að koma til skoðunar þegar þingflokkar eru að stilla upp liði og gera út um verkaskiptingu sín í milli, þ.e. að hver maður sé þar sem hann nýtist best.