151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[16:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta kemur einmitt inn á mikilvægt atriði sem mér finnst vanta í þingstörfin og það er einfaldlega kynning á verksviði hverrar nefndar fyrir sig í upphafi hvers kjörtímabils, hvers þings meira að segja, og bara almenn upplýsingagjöf, sem er aðgengileg, þess vegna fyrir alla, um það hvernig þau málefni sem hver nefnd um sig fjallar um virka. Það er í raun gert ráð fyrir því að það séu flokkarnir sem fræði þingmenn um það hvernig kerfið virkar þegar allt kemur til alls, að þar liggi stofnanaminnið en ekki í þingnefndunum sjálfum, ef þannig má orða það. Við í Pírötum höfum lent dálítið í því að koma inn sem nýr þingflokkur og þurfa að kynnast kerfinu næstum því frá byrjun í sumum nefndum, minna í öðrum en það fer eftir áhugasviði og reynslu þeirra þingmanna sem eru til staðar. Við víxlum stundum mönnum í þingnefndum og það er náttúrlega mjög óheppilegt að nýir þingmenn, nýir þingflokkar o.s.frv., sem koma að starfi nefnda, þurfi að byrja á því að hoppa út í djúpu laugina. Það er ekki svo auðvelt aðgengi að upplýsingum um það hvernig kerfið sem hver nefnd sér um, lögin o.s.frv., púslast saman í stjórnunarstörfum nefndarinnar, eftirlitshlutverki nefndarinnar. Ef svo væri þá skipti minna máli nákvæmlega hver fer í nefndastörfin nema einmitt mismunandi sannfæring fólks. Það er kannski þar frekar en í einhvers konar menntunarbakgrunni eða einhverju því um líku sem raunverulegu nefndastörfin ættu að fara fram, (Forseti hringir.) þ.e. að við værum með góða kynningu á því hvar verksvið hverrar nefndar liggur í raun og veru.