151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[16:19]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það geti nú ýmislegt verið til í því sem hv. þingmaður segir hvað þetta varðar en auðvitað hefur þingið sem stofnun verið að reyna að bæta upplýsingagjöf fyrir nýja þingmenn. Frá kjörtímabili til kjörtímabils held ég að menn séu nú að reyna að leitast við að setja þingmenn inn í störfin, m.a. nefndastörfin. En það er kannski annað atriði sem ég ætlaði að koma inn á áður en ég sleppi hendinni af hv. þingmanni og það varðar þau atriði sem hv. þingmaður hefur kannski velt fyrir sér en mér finnst vanta svolítið upp á í þessari umræðu og það er einfaldlega sú staðreynd að því fleiri flokkar sem eiga sæti á Alþingi, því minni sem þeir eru, þeim mun minna svigrúm gefst til þess að fara í tilfærslur, t.d. til að ná ákveðnum kynjahlutföllum eða öðru slíku. Ég vildi bara spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála því mati að ef flokkar á þingi væru t.d. fjórir, eins og þeir voru fyrir ekki svo mörgum árum, væri almennt meira svigrúm til þess að ná einhverjum slíkum markmiðum innan ramma hlutfallskosningakerfisins en þegar flokkar eru átta eins og er í dag, og sumir þeirra mjög litlir og fámennir. Ég vildi bara biðja hv. þingmann að deila með mér einhverjum vangaveltum um þetta atriði sérstaklega.