Þingsköp Alþingis.
Virðulegi forseti. Ég tel þetta í fyrsta lagi vera mjög góða spurningu en í öðru lagi dæmi um skammsýni þeirra sem telja sig eiga völdin og geta ekki séð heiminn öðruvísi en hann er. Fjórflokkakerfið er vonandi horfið að eilífu, amen, og við tekur annað pólitískt landslag fleiri flokka. Ég myndi vilja afnema 5% regluna til að flokkar væru enn fleiri og enn minni. Það myndi þýða svipað fyrirkomulag og var t.d. hjá Reykjavíkurborg áður, þar sem varaþingmenn væru meira til staðar í störfum nefnda og störfum þingsins og starfsfólk gæti meira að segja verið að sinna nefndastörfum fyrir hönd þingflokksins, eða þá varaþingmenn að staðaldri. Þótt ekki væri um að ræða þingmenn með raunverulegt atkvæði í þingsal værum við samt annaðhvort með starfsfólk eða varaþingmenn til að sinna nefndastörfum sem áheyrnarfulltrúar eða á þann hátt. Ég held því að það sé mjög auðveld lausn á því, hún kostar vissulega eitthvað en ég held að það verði miklu betra lýðræði sem kemur úr því en það sem felst í fjórflokkakerfinu, sem við höfum vonandi yfirgefið.