Þingsköp Alþingis.
Forseti. Ég er Pírati og vil því alltaf að gengið sé einu skrefi lengra við breytingar hverju sinni. Ég tek því undir það sem kemur fram í umsögn Samtakanna ´78 um að fólk er ekki endilega karlar eða konur og sumir einstaklingar skilgreina sig ekki sem konur eða karla heldur utan kynjatvíhyggjunnar, einhvers staðar þar á milli eða með flæðandi kynvitund. Ég myndi vilja óska að svona reglur eða svipaðar lagabreytingar myndu gera það að verkum að á nefndarfundum yrði tekið jafn mikið mark á konum og kynsegin og á körlum. Öll kyn þurfa að koma að ákvarðanatöku og það er mjög mikið af ákvarðanatöku sem á sér stað í nefndunum. Það breytir því ekki að karlar að nota meiri tíma í að tala, að ekki er tekið mark á konum í sama mæli og körlum og það er eitthvað í samfélagslegu uppeldi okkar sem gerir það að verkum að meira mark er tekið á hvítum sískynja karlmönnum og ég er persónulega orðin mjög þreytt á því og örugglega fleiri en ég.
Áhyggjur mínar almennt varðandi jafna stöðu kynjanna beinast auk þess að því að kynjahlutfallið hér í þingsal muni skekkjast meira eftir næstu alþingiskosningar, þ.e. að karlar verði hér í enn meiri meiri hluta en nú og þá myndi þessi lagagrein skila litlu eða þessi breyting. Ég skil tilganginn en ég er ekki alveg viss um að markmiðið muni skila því sem við þurfum. Vandamálið hér á þingi eins og annars staðar er sú vanvirðing sem fólk leyfir sér að sýna konum og kynsegin í ræðu og riti. Hvort sem það er á barnum hér við hliðina eða á nefndarfundum er hefð fyrir ákveðinni orðræðu og hegðun sem rífur niður og gerir lítið úr þeim sem falla ekki inn í ramma hins hvíta sís-heteronormatífa karlmanns. Lagasetning breytir því miður ekki menningu ein og sér eða tryggir að við berum virðingu hvert fyrir öðru.
Þegar kvartað hefur verið yfir vanvirðingu gagnvart konum og kynsegin hef ég heyrt að þetta sé bara partur af hinu pólitíska umhverfi. Málið er að hið pólitíska umhverfi er búið til af körlum fyrir karla. Með því að innleiða kynjakvóta er vissulega verið að reyna að breyta kerfinu en á sama tíma er verið að reyna að troða öllum í sama feðraveldisformið. Mig langar ekki að vinna á vinnustað þar sem gefið er í skyn að ég þurfi bara að hrista niðrandi orðræðu af mér og vinna með mönnum sem hafa gerst uppvísir um mjög svo niðrandi orðræðu um konur og kynsegin án þess að nokkuð væri aðhafst í því.
Auk þess er áhugavert að hv. þm. Birgir Ármannsson veltir því upp af hverju hin Norðurlöndin hafa ekki farið þessa leið og kannski að nefndarmenn ættu einmitt að velta því fyrir sér út frá því hvernig talað er um og við konur og kynsegin á hinum Norðurlöndunum. Það er kannski ekki sama þörf á að innleiða slíkar reglur. Gæti það verið svo að þau séu framar en við hvað varðar jafnrétti og jafnréttisvitund? Ég veit svo sem ekki svarið en það má velta þessu upp frá fleiri en einu sjónarhorni. Í því tilliti er einnig áhugavert að velta fyrir sér hvernig viðbrögðin á hinum Norðurlöndunum hefðu verið ef þingmenn hefðu setið saman á bar og talað niðrandi um konur, kynsegin og fatlaða. Ég held að viðbrögðin þar hefðu verið allt öðruvísi en á Íslandi. Þingin og samfélagið þar hefði gripið til mun strangari aðgerða. Óvíst er að slíkir menn hefðu átt afturkvæmt á þing þó að þeir hefðu farið í meðferð eða tekið sér pásu meðan málið hefði fengið að leggjast í dvala.
Konur og kynsegin þurfa ekki bara sæti við borðið. Við þurfum að finna fyrir rými til þess að geta tjáð okkur og við þurfum að fá þá virðingu að hlustað sé á það sem við segjum og að það sé meðtekið. Mér finnst það kannski ekki óþarfi að tiltaka í þingsköpum að tekið sé tillit til flestra hópa samfélagsins en þó er það svo að kynjakvótar í sjálfu sér gera heldur ekki ráð fyrir að konur og kynsegin geti verið í meiri hluta fram yfir karla. Þannig myndi það skila meiri árangri til framtíðar ef orðalagið væri á þá leið að við skipun í nefndir skuli taka tillit til kynjahlutfalls kjörinna fulltrúa á þingi. Lög breyta ekki hugarfari fólks við gildistöku þeirra eða tryggja að við berum virðingu hvert fyrir öðru, en vissulega getur lagasetning alltaf verið eitt skref af mörgum til þess að geta búið í jafnara samfélagi þar sem tekið er tillit til stéttar, uppruna, kynhneigðar, kynvitundar o.fl.
Að lokum vil ég benda á lög um kynrænt sjálfræði sem voru samþykkt hér á Alþingi fyrir stuttu. Við ættum öll að kynna okkur þau og hafa að leiðarljósi í allri okkar vinnu.