Þingsköp Alþingis.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að tjá mig um þetta mál enda í hópi þeirra þingmanna sem eru skrifaðir fyrir nefndaráliti meiri hlutans. Það er kannski ástæða til að nefna, þó að það hafi komið fram hér áðan af hálfu framsögumanns með hvaða hætti málið er hingað komið inn, að það er lagt fram af hálfu forsætisnefndar þingsins. Mér hefur fundist umræðan um málið sjálft í þingsalnum í dag áhugaverð. Ég held að allir átti sig á því sem þessar þrjár greinar skoða að verið er að innleiða ákveðnar vísireglur, ákveðin sjónarmið sem skuli viðhafa í allri vinnu við val í nefndir innan þingsins en þó alltaf í samhengi við það hver veruleiki þingsins er, þ.e. að framkvæmdin mun takmarkast við hlutföll kynjanna á Alþingi á hverjum tíma þannig að jafnvægi þingflokka verði ekki raskað. Hér kemur skýrlega fram að ekki er um skyldu að ræða þannig að það er algerlega augljóst að hér er einfaldlega verið að innleiða ákveðið sjónarmið sem þykir bæði málefnalegt og gagnlegt. Ég undrast það dálítið satt best að segja að menn komi hér upp og virðist allt að því smeykir við það hvert sé verið að stefna.
Mér finnst skipta máli um þetta mál hver staðan er á Alþingi Íslendinga og hefur raunar alltaf verið. Konur hafa alltaf verið í minni hluta þingmanna á Alþingi Íslendinga, alltaf. Við upplifðum það í kosningunum árið 2017 að fækkun varð á þingi, hún var tímabundin en fækkunin var um 10%. Ég held að það sé ekki gagnlegt og ekki raunsætt að tala um það sem tímabundið ástand þegar saga þingsins er sú sem hún er. Það er auðvitað þannig að það eru ákveðnir flokkar sem eru kannski mestu skussarnir á þingi í þessu samhengi og bera mesta ábyrgð á því hver kynjahlutföllin eru, en ég hefði haldið að allir flokkar þingsins ættu að geta verið sammála um það markmið sem hér er verið að stefna að, um það markmið að Alþingi geti eins og aðrar stofnanir, eins og önnur fyrirtæki, eins og vinnumarkaðurinn og atvinnulífið allt viðurkennt að kynjasjónarmið séu málefnaleg sjónarmið, séu gagnleg sjónarmið, séu praktísk sjónarmið og muni leiða til góðs að færa það í orð að Alþingi ætli að horfa í sömu átt og samfélagið allt gerir.
Síðan er það auðvitað líka þannig að þetta sjónarmið um jafnara og jafnt hlutfall kynjanna hefur praktíska og raunhæfa þýðingu, það að konur jafnt sem karlar setji lögin fyrir samfélagið allt. Við getum skoðað ákveðna lagabálka í sögulegu samhengi og spurt: Hafði það þýðingu á sínum tíma, þegar hegningarlögin voru sett, að þá voru það bara karlmenn sem sátu á þingi o.s.frv.? Hefur það þýðingu fyrir stúlkur og drengi í skólum landsins að sjá konur jafnt sem karla á Alþingi? Mér finnst það augljóst mál. Ísland hefur náð frábærum árangri í jafnréttisbaráttunni, við eigum að vera stolt af því en við eigum líka að vera meðvituð um að við erum ekki komin að landi og við erum ekki á þeim stað að tíminn einn eða biðin ein muni skila því að jafnrétti kynjanna verði niðurstaðan. Við þurfum að halda áfram. Það hefur verið þannig að það hefur verið löggjöfin, það hafa verið markvissar aðgerðir, sem hefur skilað okkur á þann stað sem við erum á í dag en ekki tíminn einn.
Mér fannst áhugavert sjónarmið sem kom fram áðan að Norðurlöndin hefðu enn í dag ekki stigið það skref að innleiða löggjöf sem skyldar þingið til að gera eitt eða neitt. Við erum ekki heldur að því. En við erum hér að nefna það í þessu máli að þetta sé sjónarmið sem eigi að líta til. Ég þekki það ekki hvort þingin á Norðurlöndum séu svo feimin að þau ámálgi það ekki en þar myndi ég nú bara segja að stundum er gott að leiða og vísa til þess að Ísland er á þeim stað sem það er vegna þess að við höfum þorað því. Þar má t.d. nefna löggjöf Íslendinga um fæðingar- og foreldraorlof sem var sett árið 2000. Hvaða áhrif hafði það í alþjóðlegu samhengi síðar? Norðurlöndin litu til Íslendinga í þeim efnum. Mér finnst að við ættum að horfa kalt á málið og lesa textann og þau sjónarmið sem þar eru reifuð, skoða hvað felst í þessum málum. Það felst í þessu máli að líta eigi til kynjasjónarmiða. Markmiðið er ákveðið og hér er ákveðinn vegvísir sem er festur í lög. En það er allt og sumt.
Getur það virkilega verið að Alþingi Íslendinga ætti að hræðast að setja svona markmið, markmið sem við höfum sett í lög fyrir allt annað atvinnulíf? Getur verið að Alþingi Íslendinga tali fyrir kynjajafnrétti og tali fyrir ákveðinni jafnréttispólitík Íslands, en líti svo á að þau sjónarmið eigi ekki við um Alþingi Íslendinga? Textinn segir „skylt að gæta að kynjasjónarmiðum“ og „skylt að gæta að hlutfalli kynjanna“, það er nú allt og sumt.
Ég ætla að fá að ljúka máli mínu á því að vísa til þess sem ég nefndi hér í byrjun, að hollt sé að hafa það í huga, þegar við skoðum þetta mál, hver staðan á íslenska þinginu er hvað varðar hlutfall kynjanna og hvert markmiðið er og ætti að vera. Við búum við þann veruleika að við höfum aldrei náð jöfnu kynjahlutfalli, að hinn dæmigerði þingmaður á þinginu okkar er 52 ára karlmaður, góður aldur. Ég er hlynnt markmiðinu og tel að það sé bæði gott, málefnalegt og raunsætt í því samhengi að kosningarnar fara eins og kosningarnar fara. Hér er ekki verið innleiða skyldur. Hér er ekki verið að binda hendur þingflokka. Hér er einfaldlega verið að biðla til þingsins að taka þátt í nútímanum og að virða kynjasjónarmið.