Þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Ég ætlaði bara, áður en þessari umræðu lýkur, aðeins að árétta innihaldið í breytingartillögunni sem ég flyt ásamt hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni. Hún gengur í raun og veru út á það að einfalda til mikilla muna fyrirkomulag við nefndarkjör þannig að sú regla gildi að við kjör í fastanefndir skuli níu þingmenn kosnir hlutbundinni kosningu samkvæmt 82. gr. og jafnmargir til vara. Í 82. gr. er síðan kveðið á um að það skuli gerast á grundvelli svokallaðs d'Hondts-kerfis og gert ráð fyrir því að þeir þingmenn eða þingflokkar sem vilja standa saman að framboði geti lagt fram lista sem síðan er kosið á milli. Þetta er skýr regla sem tekur við af núgildandi ákvæði 1. mgr. 14. gr. þar sem gert er ráð fyrir að þingflokksformenn leggi sameiginlega fram tillögu um hitt og þetta og taki tillit til alls konar sjónarmiða og frumvarpið sem hér liggur fyrir felur í raun og veru bara í sér að prjónað sé við öll þessi sjónarmið sem eiga að koma fram en eru þó ekki bindandi. Ég geri hér sem sagt ráð fyrir því að reglan sé einföld og skýr en auðvitað, eins og ég lét í veðri vaka í umræðunni áðan, geta þingflokkar komið sér saman um að alls konar sjónarmið búi að baki þeim listum sem þeir leggja fram og styðja við þetta kjör en það er ekki verið að tala um það í löngu máli í lagatextanum sjálfum.
Önnur breyting sem ég geri ráð fyrir hér er að nefndarformenn verði kosnir af hverri nefnd fyrir sig, þ.e. að ekki verði sameiginleg tillaga um nefndarformenn eða varaformenn nefnda eins og mælt er fyrir um í þingsköpum í dag, reyndar þó með þeim hætti að ef ekki næst samkomulag þá gildir sú regla. En ég vil að þetta sé skýrara. Það er þá bara þannig að þeir sem kjörnir eru í nefnd kjósa sér nefndarformann og varaformenn eftir að nefnd tekur til starfa. Og svo er í þriðja lagi gert ráð fyrir breytingu sem leiðir af þessu varðandi alþjóðanefndirnar.
Ég er í raun og veru að tala um það að í staðinn fyrir að taka út allar málalengingar um öll sjónarmiðin sem hafa eigi í huga, að menn eigi að reyna að koma sér saman um hitt og þetta og ef þeir koma sér ekki saman um hitt og þetta þá sé bara kosið á milli þeirra, sé gert ráð fyrir því að kosið sé á grundvelli d'Hondt-reglunnar, á grundvelli hlutfallslegs styrks hér í þinginu. Og vilji menn síðan koma sér saman um eitthvað annað þá gera menn það bara, eins og menn hafa t.d. gert í sambandi við kjör í nefndir utan þingsins þar sem margoft hefur komið upp að kynjasjónarmiða er gætt jafnvel þótt til þess sé engin lagaskylda.