málefni innflytjenda.
Frú forseti. Ég ætlaði aðeins að spyrja hv. þingmann út í eitt atriði en ég verð nú að segja að mér finnst lokaorð hv. þingmanns afar undarleg, að gefa til kynna — það var nú reyndar ekki nefndur neinn stjórnmálaflokkur — að hér væri stjórnmálaflokkur með rasískar ræður og hugmyndir í þessum efnum og það hefur enginn tekið til máls nema hv. þingmaður. Þetta er alveg stórfurðulegur málflutningur, frú forseti, ég verð að segja það alveg eins og er. Ég nálgast þetta mál m.a. út af veru minni í fjárlaganefnd. Mér ber sem nefndarmanni í fjárlaganefnd að stuðla að ráðdeildarsemi í fjármálum ríkisins og þetta mál er ekkert kostnaðargreint, ekki komið inn á borð fjárlaganefndar.
Það er alveg ljóst að dómsmálaráðuneytið hefur viðurkennt að fjöldi umsókna hefur vaxið mjög á undanförnum árum og að hér sé veitt besta þjónustan fyrir hælisleitendur og nú á að fara að bæta þessa þjónustu enn frekar með þessu frumvarpi. Á síðasta ári tókum við á móti 85 kvótaflóttamönnum en 631 hælisleitendi fékk hér dvalarleyfi og það á að fara að bæta þjónustuna við þennan stóra hóp. Einhleypur kvótaflóttamaður kostar um 6 millj. kr. á ári. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að þetta muni valda verulegum kostnaði fyrir ríkissjóð? Það er verið að auka þjónustuna og hún kostar. Síðan eru það skilaboðin sem er verið að senda út, að hér sé verið að bæta þjónustuna enn frekar við þennan hóp sem þegar er til staðar. (Forseti hringir.) Það mun þýða að hingað munu koma margfalt fleiri umsóknir, ég held að það sé alveg ljóst. Ef hv. þingmaður gæti farið yfir þetta.