málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður hefur áhyggjur af orðum mínum. Ég segi bara: Taki þeir til sín sem eiga það. Ég hef virkilegar áhyggjur af þeim kostnaði sem hlýst af því ef við ætlum ekki að upplýsa það fólk sem við tökum hingað til okkar. Þetta er ekki Útlendingastofnun, þetta er Fjölmenningarsetur. Það er ekki þeirra að samþykkja umsóknir. Ef við ætlum að taka á móti fólki og veita því ekki þær upplýsingar sem það þarf, þá spyr ég bara á móti: Hvaða kostnaður hlýst af því og hver ætlar að greiða hann? Þegar við tókum þetta frumvarp aftur til umræðu fengum við starfsmann, nýráðinn forstöðumann Fjölmenningarseturs, til okkar, og hún upplýsti okkur um það að þegar væri búið að ráða inn fólk. Ég held að það hafi einn eða tveir starfsmenn verið að koma inn og það var fjárveiting fyrir því og það kom fram í þeirra máli að það væri búið að fjármagna þetta að hluta, en auðvitað getum við ekki séð inn í framtíðina hvað þetta verður mikið. Við þurfum þá að taka á því. Ég vona að hv. þingmaður, sem situr í fjárlaganefnd, komi til með að taka tillit til þess.