málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég held það. Í reynd hefur Fjölmenningarsetrið, hvort sem það er staðsett á Ísafirði eða í Reykjavík, skyldum að gegna við sveitarfélög um allt land og alla einstaklinga. Við erum líka komin þangað að mikið er um rafræn samskipti en í öllum stofnunum ríkisins þurfum við að vera með einhverja þekkingu og tök á málefnum þessa fólks, það er nauðsynlegt til að geta komið sem best til móts við þá sem þangað leita. En ég held að það sé ekki til trafala að ekki séu útibú frá Fjölmenningarsetri á fleiri stöðum og Vinnumálastofnun er örugglega þegar í dag farin að taka þetta hlutverk að einhverju leyti að sér, sem snýr að þessu fólki. Ég held að það skipti máli og það sé mikilvægt að í öllum stofnunum sem sinna þessu — og hjá sveitarfélögunum sérstaklega, þetta kemur mikið inn á þeirra borð — sé fagþekking og reynsla. Hlutverk Fjölmenningarseturs er að veita stjórnvöldum, aðilum, fyrirtækjum, samtökum og einstaklingum, ráðgjöf og upplýsingar varðandi málefni innflytjenda og þessir aðilar geta þá leitað til Fjölmenningarseturs ef þá vantar upplýsingar.