málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að bregðast við þótt ekki hafi komið nein svör. Hv. þingmaður talaði í ræðu sinni um íslenskukennslu. Fjölmenningarsetrið á ekki að sinna því hlutverki, það er á ábyrgð menntamálaráðherra. Ég spyr bara enn og aftur: Hvað kostar það að veita ekki upplýsingar? Hv. þingmaður talaði um skerðingar hjá eldri borgurum. Ég vil minna á að innan raða innflytjenda eru öryrkjar og eldri borgarar. Við erum akkúrat að koma til móts við þann hóp í þessu með því að veita betri upplýsingar. Það er það sem skiptir máli. Það er mjög mikil breidd í þessum hóp og það er sérstaklega viðkvæmur hópur sem eru öryrkjar og eldri borgarar sem þurfa á betri upplýsingum að halda. Við erum að koma til móts við þann hóp. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við náum þessu fram. Enn og aftur spyr ég: Hvað kostar það að koma ekki til móts við hann? Síðan vil ég bara minna á sérstakan viðbótarstuðning við aldraða. Þegar við vorum að fjalla um það málefni og það komst í gegn — ég var flutningsmaður þess máls frá félagsmálaráðherra — vorum við að tala um aukinn styrk til aldraðra innflytjenda. Kannski að hv. þingmaður kynni sér það mál, það var afgreitt í fyrra.