151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[19:21]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að við hv. þingmaður getum verið sammála um það að auka beri fé og þjónustu og stefnumótun þegar kemur að þróunarsamvinnu. Ég held akkúrat að heimsfaraldurinn gefi okkur tækifæri til að endurhugsa ýmsa þætti í þróunarsamvinnu er lúta að framlagi okkar í heilbrigðismálum og í því að styrkja þróunarlöndin. En hv. þingmanni varð tíðrætt um, ég held hann hafi ekki bara nefnt það tvisvar heldur oftar, danska jafnaðarmenn með vísan til systurflokksins hér á Íslandi, Samfylkingarinnar, og var hróðugur mjög. Til upplýsingar ber að geta þess að danskir jafnaðarmenn skera sig frá öllum öðrum evrópskum sósíaldemókrataflokkum varðandi innflytjendamál og það veit hv. þm. Ólafur Ísleifsson mjög vel.

Varðandi tölur um fjölda þeirra sem sækja um hæli, að þeir séu mun fleiri hér en til að mynda í Danmörku, þá er það vegna þess að flóttamenn hafa ekki lengur möguleika á að sækja tafarlaust um hæli við komuna til Danmerkur. Það er eitt af því sem danskir jafnaðarmenn stóðu fyrir þegar þeir tóku við stjórnartaumunum. Ég vil líka árétta það að formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson, hefur opinberlega og í einkasamtölum og á lokuðum fundum mótmælt þessari stefnu danskra jafnaðarmanna í innflytjendamálum og það hafa aðrir sósíaldemókrataflokkar í Evrópu sömuleiðis gert. Stefna danskra jafnaðarmanna í innflytjendamálum er ekki mannúðleg að mjög mörgu leyti. Það veit hv. þm. Ólafur Ísleifsson mjög vel. (Forseti hringir.) Það er ekki á rökum reist að spyrða Samfylkinguna saman við danska jafnaðarmenn. Danskir jafnaðarmenn hafa skorið sig mjög úr og hafa í raun fylgt fráfarandi flokk í ríkisstjórninni, danska þjóðarflokknum, þegar kemur að innflytjendamálum og það hefur ekkert með jafnaðarmennsku eða mannúð að gera.