151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[19:23]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er naumast að menn sverja af sér norrænu flokkssystkinin. (RBB: Í þessu máli, já. Það hef ég gert.) Þetta er svo hátt og snjallt að það heyrist alla leið til Kaupmannahafnar.

Frú forseti. Þegar ég fjalla um þessi mál þá byggi ég á frumgögnum, frumheimildum, stefnuskrám stjórnmálaflokka, stjórnarsáttmálum ríkisstjórna, þingræðum helstu forystumanna, greinum ráðherra í þeim málaflokki sem hér er um að ræða. Ég hef bæði í ræðu og riti fjallað um það hvernig forsætisráðherrann danski, frú Mette Frederiksen, fjallar um málið. Ég hef líka vitnað í jafnaðarmanninn sem situr á stóli ráðherra málaflokksins í Danmörku, hann heitir Mattias Tesfaye og hv. þingmaður hefur kannski hitt hann á norrænum kratasamkundum. Hann hafnar því með öllu að þessi stefna sé ómannúðleg og hann gerir það með sterkum rökum.

Ég hef rakið hér málatilbúnað hinna dönsku jafnaðarmanna, ég hef ekki tíma til að endurtaka það í þessari ræðu. Hún er vönduð, hún er ábyrg og ég hvet hv. þingmann til að kynna sér þá stefnuyfirlýsingu danska jafnaðarmannaflokksins sem ég hef vitnað til og er upp á 14 síður, mjög merkilegt plagg. Ég hvet hv. þingmann líka til að lesa ræðu danska forsætisráðherrans 6. október og ég hvet hv. þingmann til þess að fordæma ekki svona flokkssystkini sín í Danmörku og víðar á Norðurlöndum. Ég vil líka bendi á það að flokksbróðir hennar, sænski forsætisráðherrann, Stefán Löfven, sendi frá sér stefnumarkandi yfirlýsingu á síðasta ári í þessum málaflokki.