151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

störf þingsins.

[13:04]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að öflug löggæsla sé ein af forsendum þess að öryggi borgaranna sé tryggt. Við í Samfylkingunni höfum margbent á það á kjörtímabilinu að auka þurfi fjárveitingar til almennrar löggæslu, enda hefur lögreglumönnum fækkað mikið þrátt fyrir aukin og flóknari verkefni. Í Kompásþætti á Vísi er fjallað um hið skelfilega manndráp sem átti sér stað í Rauðagerði, sem í fjölmiðlum er sögð hrein aftaka. Rætt er við ekkju hins látna en einnig yfirlögregluþjóna og settan skattrannsóknarstjóra. Skipulagðir glæpir eru til umræðu og mögulegar varnir okkar. Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir þar aðspurður að lögreglan hafi að sjálfsögðu viljað vakta ferðir einstaklings sem grunaður var um að bera skammbyssu með hljóðdeyfi, en að lögreglu skorti hvort tveggja mannafla og tíma til að geta sinnt slíkum verkefnum. Maður ferðast sem sagt um landið vopnaður skammbyssu með hljóðdeyfi með vitneskju lögreglu sem getur ekki aðhafst vegna fjárskorts. Theodóra Emilsdóttir, settur skattrannsóknarstjóri, segir í sama þætti skipulagða glæpi vera að gerast fyrir framan augun á okkur en að embættið hafi án árangurs kallað eftir úrræðum til að geta brugðist hraðar við grun um að verið sé að misnota skattkerfið til að koma illa fengnu fé undan. Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir að skipulögð brotastarfsemi sé líklega einhver mesta ógn sem samfélög glíma við í dag.

Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur sofnað á verðinum þegar kemur að því að tryggja öryggi borgaranna og berjast gegn skipulögðum glæpum. Er það í besta falli kæruleysi en í versta falli afglöp ríkisstjórnarinnar. Þetta varðar mannslíf, herra forseti, öryggi borgaranna og heilbrigt samfélag. Ég skora á ríkisstjórnina að opna augun og bregðast við áður en það er um seinan.