störf þingsins.
Hæstv. forseti. Uppbygging Kjalvegar er það sem mig langaði að ræða hér í dag. Við lifum í breyttum heimi og Ísland nýtur athygli umheimsins sem aldrei fyrr. Það birtist m.a. í áhuga ferðamanna á landinu. Samgöngur þurfa að taka mið af þessu og við þurfum að hugsa stórt. Ég hef ásamt fjórum þingmönnum á ný lagt fram tillögu um uppbyggingu vegar yfir Kjöl með það að markmiði að halda honum opnum stóran hluta árs. Meginrökin byggja á mikilvægum öryggis-, byggða- og umhverfisverndarsjónarmiðum. Í tillögunni er lagt til að samgönguráðherra hefji undirbúning og vinnu ljúki í árslok 2022. Kjalvegur á að vera slagæð landsbyggðarinnar og efla hana og efla á veginn í öllu tilliti. Kjalvegur hefur frá landnámsöld verið mikilvæg samgönguæð í gegnum hálendið. Endurbætur og uppbygging vegarins hefur verið til umræðu um áratugaskeið þó að lítið hafi gerst. Ég sé fyrir mér að verkefnið byggi á notendagjöldum og hafi því ekki áhrif á forgangsröðun samgönguáætlunar. Einkaaðili getur tekið að sér fjármögnun, framkvæmd og rekstur verkefnisins í umboði hins opinbera.
Með nýjum Kjalvegi styttist vegalengdin á milli Gullfoss og Mývatns um 237 km og yrði rétt 300 km. Til yrði nýr öxull íslenskrar ferðaþjónustu sem tengdi saman tvö helstu ferðamannasvæði landsins. Með nýjum Kjalvegi yrðu einungis 135 km frá Gullfossi niður í byggð Skagafjarðar og 218 km til Akureyrar. Aukning umferðar kallar á að slegin verði skjaldborg um vernd hálendisins. Nýr Kjalvegur taki mið af landslagi, styrki náttúruvernd á hálendinu, auðveldi stjórnun gegn utanvegaakstri og dragi stórlega úr rykmengun og skaða ökutækja. Þegar slík samgöngubót er jafnframt umhverfisvæn þá er mér spurn, hæstv. forseti: Eftir hverju er að bíða?