151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

störf þingsins.

[13:15]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það hefur mikið átak verið gert á þessu kjörtímabili í umhverfismálum sem snýr að fjölbreyttum aðgerðum. Við höfum til að mynda verið að banna plast og ýmislegt annað hefur verið gert, reyndar umdeilt, en er samt sem áður staðreynd. Mig langar að gera hér að umtalsefni stöðuna með rúlluplast. Mest af því er flutt til útlanda, til plastmiðlara í Hollandi. Úrvinnslusjóður greiðir fyrir söfnun og skil. Árið 2018 gerði EFLA verkfræðistofa úttekt fyrir Úrvinnslusjóð og kom í ljós að 70% af þessu plasti var drulla, óhreinindi og vatn. 30% var plast. Í dag er reiknað með hjá Úrvinnslusjóði að þetta séu um 58%. Það gerir allar úrvinnslutölur rangar. Samkvæmt mínum upplýsingum, virðulegur forseti, er allt þetta plast flutt til Malasíu af þessum miðlara í Hollandi. Hvað verður um það er ómögulegt að segja en það er harla ólíklegt að það fari þar í nútímaendurvinnslu á plasti, eins og við reiknum með og viljum að það geri. Á sama tíma er verksmiðja starfandi í Hveragerði sem er einhver umhverfisvænsta verksmiðja á þessu sviði í heiminum og hún er verkefnalaus.

Virðulegi forseti. Ég spyr: Hvers konar umhverfisstefna er þetta? Búið er að benda ítrekað á þessa vankanta á málinu á undanförnum mánuðum og árum en það hefur engin breyting orðið á. Er þetta blekkingaleikur? Er þetta tvískinnungur í okkur þegar kemur að umhverfismálum og þessum mikilvæga þætti? Þetta minnir óneitanlega á förgun skipa í Indlandi sem gerð var að umtalsefni í vetur og vakti mikla athygli. Ég held að við þurfum að bretta upp ermar, virðulegur forseti. Mér þótti heldur dapurt að heyra það í samtölum mínum við embættismenn umhverfisráðuneytisins að þeim er kunnugt um þetta og því enn furðulegra að ekki skuli vera brugðist við með viðeigandi ráðstöfunum.

(Forseti (SJS): Forseti biður hv. þingmann afsökunar á því að stýrikerfið ruglaðist eitthvað og mælendaskrá hvarf af skjá forseta þannig að forseti er ekki með það á hreinu hver var næstur á mælendaskránni. En ef það hefur verið 5. þm. Norðaust. þá er réttast að hann fái orðið og ég ætla að hafa uppi á mælendaskránni á meðan.)