efnahagsmál.
Herra forseti. Mig langar að koma inn á tvo hluti sem hæstv. fjármálaráðherra eyddi talsverðum tíma í hérna áðan. Það er hækkun húsnæðisverðs og verðbólga, hvort tveggja kvíðvænlegir hlutir og sérstakt áhyggjuefni fyrir heimilin. Verðbólga hefur ekki mælst hærri á Íslandi frá því í ársbyrjun 2013 og ein stór ástæða þess er hækkun húsnæðisverðs. Önnur er veiking krónunnar. Húsnæði hefur hækkað um 10% á einu ári. Markmið stjórnvalda hverju sinni á að vera að tryggja aðgengi fólks að öruggu húsnæði, það er grunnþörf og rammi utan um það sem við köllum heimili. En það má ekki gera eingöngu með því að hvetja til aukinnar skuldsetningar. Þegar efnahagslífið fer að taka við sér er fyrirséð að vextir munu hækka aftur, verð orðið hærra á íbúðum og heimilisbókhaldið verður snúnara en áður fyrir fólk. Við upplifum núna í miðri kreppu vísbendingu um fasteignabólu. Manni verður sérstaklega hugsað til ungs fólks sem ekki hefur komist inn á markaðinn og er ekki með sterkt fjárhagslegt bakland og þarf nú allt í einu að fóta sig á markaði sem er bæði dýrari, verður hugsanlega með hærri vöxtum og í óvenjuerfiðu atvinnuástandi ef marka má fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Stjórnvöld hafa einfaldlega ekki boðið upp á nægilega skýr úrræði fyrir ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á mjög erfiðum markaði og á ekki mikið í séreignarsparnaði. Eina leiðin sem stjórnvöld hafa komið með kyndir undir verðhækkanir. Verkefnið til langs tíma er hins vegar að tryggja stöðugt og fyrirsjáanlegt framboð á íbúðum sem dregur úr þessum miklu sveiflum á fasteignamarkaði. Næsta ríkisstjórn þarf að bjóða upp á miklu skýrari sýn og leggja fram trúverðugri áætlun þar um.