efnahagsmál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Steindóri Valdimarssyni fyrir að hefja þessa góðu og gegnu umræðu, og hæstv. fjármálaráðherra fyrir að vera með okkur í dag. Það hefur ekki farið fram hjá neinu okkar að hér hafa verið að kvikna neistar alveg frá því að Covid-faraldurinn helltist yfir okkur, neistar sem hefðu orðið að risastóru báli víðs vegar um samfélagið ef ekki hefði verið reynt að grípa til aðgerða. En það breytir ekki þeirri staðreynd að þeim aðgerðum hefur að mati Flokks fólksins ekki verið beitt réttilega öllum til hagsbóta, því miður.
Mig langar til að benda á, þegar verið er að tala um efnahagslegan stöðugleika, að sú kona sem hér stendur hefur mælt fyrir því að við t.d. tækjum inn 70 milljarða á ári frá lífeyrissjóðskerfinu með því að skattleggja lífeyrisgreiðslur við staðgreiðslu, við innborgun í sjóðina, ekki þegar við erum að taka út úr þeim, ekki þegar við erum orðin gömul og lúin og vildum gjarnan sleppa við að borga 35–37% skatt, heldur strax við staðgreiðslu. Við sjáum vanda alls staðar. Við sjáum vanda hjúkrunarheimilanna. Við sjáum gífurlegar skerðingar, sem eyðileggja í rauninni möguleikana fyrir fátækustu Íslendingunum á því að bjarga sér sjálfir. Við vitum að lífeyrissjóðirnir þurfa að fjárfesta fyrir tæpa 18 milljarða kr. á mánuði. Samkvæmt öllum þeim lífeyrissjóðsgreiðendum sem ég hef talað við, sem skipta tugum ef ekki hundruðum, hefðu þeir frekar kosið að fá að njóta t.d. áhyggjulauss ævikvölds með því sem þeir hafa safnað í sjóðina sína. Við erum að tala um lífeyrissjóði sem eiga hátt í 6.000 milljarða kr. Þegar það er í rauninni í höndum ríkisstjórnarinnar, hvers vegna þá ekki að nýta það a.m.k. á þessum tímapunkti að leyfa lífeyrissjóðunum okkar að taka þátt í því að byggja undir efnahagslegan stöðugleika og hjálpa okkur í þeim vanda sem við glímum við í dag?