151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

efnahagsmál.

[14:22]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir mjög áhugaverða umræðu. Lykilspurningin hefur verið: Hvernig ætlum við að vaxa sem samfélag og tryggja samkeppnishæf lífskjör til framtíðar? Hvernig ætlum við að styðja við sjálfbæran vöxt til langs tíma til að geta staðið undir því velferðarsamfélagi sem við viljum lifa í?

Ég hef lagt áherslu á að það þurfi að skoða hver sé rót vanda þess sem við eigum oft við að etja og tel ótvírætt að hann tengist gjaldmiðlinum, sem er uppspretta óstöðugleika. Það höfum við margoft reynt. Hér kom fram að krónan væri mjög góð til að hjálpa okkur í gegnum áföll. Krónan hjálpaði okkur ekki við að koma í veg fyrir að 25.000 Íslendingar yrðu atvinnulausir. Krónan hjálpaði okkur ekki til að koma í veg fyrir hæstu verðbólgu í átta ár. Verðbólga hér er hærri en í nokkru öðru Evrópulandi. Atvinnuleysi jókst hér meira en í nokkru öðru Evrópulandi og þótt víðar væri leitað. Margar þjóðir eru mjög háðar ferðamennsku eins og við Íslendingar. Það kostaði líka verulega sneið af gjaldeyrisforða Íslendinga að styðja við krónuna. Engu að síður, þrátt fyrir allt þetta stöðugleikatal og hversu vel hafi tekist til með krónuna, hefur krónan sveiflast mjög mikið á undanförnum árum og það eru miklar sveiflur á krónunni þrátt fyrir allt. Gengi krónunnar hefur breyst og nú er verið að boða það að gengi krónunnar muni styrkjast. Þannig að gengi krónunnar hefur áhrif hér á Íslandi. Það er klárt mál.

Ég tel að framtíðarsýn okkar til lengri tíma verði að taka mið af þessum staðreyndum. Niðurskurður nauðsynlegrar þjónustu eða (Forseti hringir.) hækkun skatta er ekki rétta leiðin. Við verðum einfaldlega að taka stöðu með almenningi og ýta undir aukinn hagvöxt með stöðugra gengi og lægri vöxtum (Forseti hringir.) um komandi framtíð. Það er akkúrat það sem við viljum gera í Viðreisn.