Þingsköp Alþingis.
Forseti. Eins hér kemur fram er verið að setja ákveðnar leiðbeiningar í þingsköp sem eru ekki beint framkvæmanlegar, við skulum hafa það algerlega á hreinu. Þetta eru ákveðnar leiðbeiningar um það hvernig þessum málum eigi að vera háttað og í raun bara orðalag um þá framkvæmd sem er í gildi. Ef eitthvað er þá er ákveðið gegnsæi í því, svona ætlumst við til að málum sé hagað og við skrifum það á blað til þess að hafa það skýrt. En höfum það samt algjörlega á hreinu að það er ekki endilega framkvæmanlegt að fylgja bókstaf laganna sem er áhugavert út af fyrir sig en er ekkert einsdæmi. Það eru margar leiðbeiningar í lagabálkunum fram og til baka sem ekki eru framkvæmanlegar, t.d. um að horfa eigi til skilvirkni og umhverfissjónarmiða og eitthvað því um líkt. Það er ekki alltaf framkvæmanlegt þegar allt kemur til alls heldur eru það leiðbeiningar um það hvernig við högum störfum okkar og reynum að uppfylla lögin eins og við getum. En eins og ég segi: Þetta er ekki framkvæmanlegt en þetta eru leiðbeiningar sem verið er að fara eftir (Forseti hringir.) og allt í lagi að hafa það skýrt upp á gagnsæið að gera.