151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

Þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:42]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég ætlaði að sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu, hreinlega út af því að ég skildi ekki alveg hvernig við ætluðum að innleiða þetta eða tryggja það. En eftir að hafa heyrt ræðurnar þá hef ég skipt um skoðun og ég ætla að styðja málið. Ég styð svo sannarlega markmiðið og að sjálfsögðu eigum við að líta til þessara sjónarmiða við ákvarðanatöku um setu í nefndum. Það skiptir máli að hafa konur í hópnum þegar verið er að taka ákvarðanir. Við bara vitum að sjónarmið kvenna skipta gríðarlega miklu máli og ákvarðanatakan verður betri þegar við erum með sjónarmið beggja kynja tryggð í þeim ákvörðunum sem við tökum. Ég styð það markmið og finnst bara skrýtið að setja þurfi það í lög að líta eigi til þessara sjónarmiða. Þess vegna hafði ég upphaflega talið að best væri að sitja hjá þar sem ég skildi ekki alveg þessa hugmynd um að vera að setja í lög eitthvað sem ekki er hægt að tryggja og ekki hægt að framkvæma almennilega. En ég styð það að líta eigi til þessara sjónarmiða og verð þar af leiðandi á græna takkanum.