151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

þingsköp Alþingis.

80. mál
[14:43]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég ætla að greiða atkvæði með þessu máli. Ég vil þó vara við því að svona reglur sem vitað er fyrir fram að er ekki hægt að framfylgja geta virkað sem falskt öryggi. Við megum ekki líta á þessa breytingu sem einhvern lokasigur eða stórsigur ef út í það er farið vegna þess að við vitum, eins og hefur komið fram, að hin raunverulegu áhrif eru alfarið háð vilja og ákvörðunum þingflokka hverju sinni, eins og verið hefur. Ég styð málið einnig vegna þess að þrátt fyrir þetta erum við að breyta þingskapalögum sem eru mjög sérstök lög og hafa mjög sérstakt hlutverk í lagasafninu, gilda t.d. ekki um hinn almenna borgara heldur okkur þingmenn. Ég hefði meiri efasemdir ef þetta ætti að gilda um almenna borgara vegna þess að það liggur fyrir að þetta hefur engin tæknileg áhrif. Þetta breytir ekki neinu nema bara með því að vera vísiregla. (Forseti hringir.) Ég tel það hins vegar við hæfi að hafa vísireglur í þingsköpum og styð málið þess vegna.