málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég þarf sjálfstæða ræðu til að fara yfir allt sem ég er ósammála hv. þingmanni um, af því sem kom fram í ræðu hans. En mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins út í þennan fjölda, 631 hælisleitandi á síðasta ári samkvæmt ræðu hv. þingmanns, sem ég dreg ekki í efa. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji þetta vera of margt fólk, hvort íslenskt hagkerfi eða íslenskt samfélag ráði ekki við þá fjölgun. Þá vil ég splæsa á hv. þingmann þeirri tölfræði að það fæddust 4.500 börn á síðasta ári. Þau gefa ekkert efnahagslega til samfélagsins fyrsta einn og hálfan áratuginn eða svo þar til þau fara að borga skatta. Á þeim tíma þurfa þau umönnun, skólakerfi, heilbrigðiskerfi, þau kosta ógrynni á fjárlögum. Telur hv. þingmaður það ekki vera vandamál að hér fæðist 4.500 börn sem gefa lítið sem ekkert til samfélagsins á næstu 15 árum? Er þetta ekki vandamál? Er þetta ekki of mikið? Ræður íslenskt samfélag við þetta? Ég átta mig á því að hv. þingmaður er hér að fjalla um kostnaðinn sem hlýst af því að þjónusta fólk á meðan það er að bíða eftir niðurstöðu og jafnvel eftir að það fær niðurstöðu, allt í góðu með það.
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann að því hvaðan hann fær töluna 6 millj. kr. á mann. Ef hv. þingmaður deilir þessum u.þ.b. 4 milljarða kr. kostnaði á 631 hælisleitanda þá gerir hann ráð fyrir því að kerfið í dag sé til þess að hleypa fólki inn. En kerfið er til þess að halda fólki úti. Þetta er kostnaður sem kemur til vegna þess að þetta fólk má ekki vera hérna. Það kostar ekki 4 milljarða að hleypa hér inn 630 Pólverjum, Grikkjum, Ítölum, Portúgölum, Þjóðverjum eða Finnum vegna þess að þeir mega vera hérna. Kostnaðurinn stafar af því að hafa vegginn og hafa verðina á honum. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um 4.500 ný börn á Íslandi sem við þurfum að borga undir næstu 15 árin, hvort íslenskt samfélag ráði við það.