málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég átta mig hreinlega ekki á því hvers vegna hv. þingmanni er svo mikið í mun að þessi eflaust ágæti þjónn sem hv. þingmaður kynntist stuttlega í Georgíu megi ekki vera á Íslandi. Hvers vegna er það vandamál að einhverjir frá Georgíu flytji til Íslands? Það er ekki vandamál að Grikkir geri það eða Ítalir, Frakkar eða 600 milljónir manna sem búa í Evrópu og tilheyra EES og ESB-samstarfinu. Hvers vegna er það vandamál ef einhver frá Georgíu eða Albaníu gerir það? Af hverju má fólk ekki bara koma hingað og vinna? Eru 630 eitthvað að buga íslenskt hagkerfi?
Ég er sammála hv. þingmanni, ég fagna þessum 4.500 nýburum á Íslandi, en ég spurði hins vegar til að benda á að það er ekki eingöngu kostnaður fólginn í fólksfjölgun. Það er varla vandamál að hingað komi 630 manns í gegnum hælisleitendakerfið, er það, virðulegi forseti? Eða hvað? Vegna þess að ef hv. þingmaður er bara að hugsa um kostnaðinn og ekki t.d. hvaðan fólk kemur eða hverrar trúar það er þá er til mjög augljós leið til að koma til móts við þann vanda. Ég er sammála hv. þingmanni, ég vil ekki að kerfið sé misnotað og ég vil ekki að það kosti óheyrilegar fjárhæðir. En lausnin er augljóslega ekki sú að stækka báknið sem kostar allan þennan pening, heldur þvert á móti að gera fólki kleift að koma hingað til landsins og vinna og starfa. Það er bara í lagi mín vegna að þjón í Georgíu langi til að heimsækja Ísland. Ég fatta ekki alveg af hverju hv. þingmanni er svo í nöp við þá hugmynd.