málefni innflytjenda.
Virðulegur forseti. Ég trúi því að sannleikurinn sé til og að það sé hægt að rannsaka hann. En nóg um það í bili. Þá má vel vera að ég hafi óvart nota orðið innflytjendur einhvers staðar þar sem ég átti að segja hælisleitendur. Ég tek því bara. Mér var heitt í hamsi á tímabili í ræðunni og það má vel vera að það hafi orðið orðaslys — eða tvö eða þrjú eða fimm.
Hv. þingmaður spyr annars vegar hvað hægt sé að sjá af miklu fé í þennan málaflokk, þá geri ég ráð fyrir að hann eigi við hælisleitendakerfið, og hins vegar hvað við getum tekið á móti mörgum. Hvað við getum sett af fé í kerfið er auðvitað ekki spurning sem hægt er að svara á einhverjum vísindalegum grunni, það byggir alltaf á einhverju verðmætamati. Hins vegar hygg ég að 4 milljarðar í þetta hælisleitendakerfi sé verulega vond nýting á fé, þar er ég sammála Miðflokknum, en það er ekki þannig að þetta sé að sliga íslenska kerfið, hvorki ríkissjóð né hagkerfið, langt í frá. Við erum með stærri upphæðir annars staðar, við erum t.d. með þjóðkirkju. Ég nefni það ekki vegna þess að við ættum að leggja hana niður og setja peningana í þetta. Ég er bara að benda á að ef fólk hefur áhyggjur af því að 4–6 milljarðar sligi íslenska ríkið eða hagkerfið þá eru önnur vandamál þar sem við getum tæklað sem ég heyri ekki svo gjörla að hv. þingmenn Miðflokksins vilji tækla.
Stutta svarið er að ég veit það ekki. En ég veit að þetta er ekki að sliga ríkissjóð eins og er og ég trúi því að hægt sé að lækka þessa tölu mjög mikið með því að breyta kerfinu okkar til hins betra.
Hvað við getum tekið á móti mörgum? Ég verð að viðurkenna, virðulegur forseti, að ég myndi vilja, í gegnum framkvæmdarvaldið og stofnanir þess, einhvern veginn reyna að finna einhverja formúlu sem gæti vísað okkur veginn þar. En ég skal þó segja að 631 er alls ekki of mikið. Það fæddust 4.500 Íslendingar eða fólk á Íslandi, alla vega í fyrra. Það er ekkert of mikið. Það koma einfaldlega ekki of margir hælisleitendur til Íslands. Það er kerfið sem er vandamálið. Það er báknið sem vandamálið. Það er kostnaðurinn sem fer í báknið sem er vandamál, virðulegur forseti, ekki fjöldinn sem kemur hingað. Og hann mætti verða þó nokkuð mikið meiri — ég þori ekki að nefna tölu, virðulegur forseti, en ég hygg margfalt meiri án þess að það yrði til teljandi vandræða.