151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[17:27]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem mig langar til að orða hér við hv. þingmann — það er af því að ég veit að hv. þingmaður vill hafa opinn hug og hann vill vera leitandi, þannig sé ég hv. þingmann fyrir mér og þannig talar hv. þingmaður. Eitt af því sem ég tel að okkur þingmönnum beri skylda til að gera er að fylgjast með því sem gerist í umhverfi okkar, til að mynda hjá nágrannalöndum okkar. Við berum okkur mjög mikið saman við Norðurlöndin. Við höfum t.d. átt mjög mikið lagasamstarf við Norðurlöndin, svo ég nefni bara eitt dæmi af því að við erum að ræða hérna saman á þjóðþinginu.

Ríkisstjórnin í Danmörku talar með mjög skýrum hætti. Þetta er minnihlutastjórn jafnaðarmanna og hefur verið vitnað til orða forsætisráðherrans, frú Mette Frederiksen, um að hún vilji helst ekki sjá neinn hælisleitanda á danskri grundu. Þau vilja ráða því sjálf hverjir koma til landsins. Þau vilja nota takmarkað fé til að hjálpa fólki á heimaslóð og hjálpa þannig miklu fleirum, sem ég þykist vita að hv. þingmaður áttar sig mjög vel á, og nota féð um farveg þróunarsamvinnu, m.a. á vettvangi Alþjóðabankans og þeirra stofnana allra saman.

Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann: Er hann reiðubúinn til að setja sig í þær stellingar að leitast við að læra af nágrannalöndunum, læra af mistökum og reyna að skilja áhyggjur þeirra, m.a. af velferðarkerfi þeirra og samfélagi þeirra sem þau telja að sé í miklum háska?