151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[21:23]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, mér finnst mjög mikilvægt að við sjáum vel um fólk sem kemur hingað og að okkur takist að hjálpa því að aðlagast samfélaginu sem best. Ég styð þetta frumvarp vegna þess að það er liður í því, ólíkt hv. þingmönnum Miðflokksins sem ég hef heyrt tala hingað til. Ég verð að viðurkenna að ég heyrði ekki alla ræðu hv. þingmanns áðan þannig að ég get ekki fjallað um það sem ég talaði um í samhengi við hana. Vel má vera að umræðuefni mitt komi umræðuefni hv. þingmanns ekkert við. Ég þekki það hreinlega ekki. En ég sé það líka í kommentakerfum fréttamiðlanna, ég sé það í umræðum á Facebook, ég heyri það úti á götu, virðulegi forseti, að fólk er hrætt við útlendinga sem eru mjög ólíkir okkur, sem eru með mjög ólíka sýn á það hvernig lífið og samfélagið virkar. Þótt ég telji þann ótta mjög oft byggðan á fordómum, ef ekki oftast, skil ég það samt alveg. Ég skil það alveg og mér finnst allt í lagi að við tökumst bara aðeins á við það og finnum á því lausnir sem eru mögulegar á Íslandi enn sem komið er. Þetta er ekki of margt fólk. (Forseti hringir.) Kostnaðurinn er vond nýting á fé sem við gætum nýtt betur en hann er samt ekkert að fara að sliga ríkissjóð. (Forseti hringir.) Þetta er það sem ég hygg að liggi að baki þessum almenna ótta við að hingað komi allt of mikið af einhverri tegund af fólki (Forseti hringir.) sem að sögn á ekkert sammerkt með íslensku samfélagi.