málefni innflytjenda.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, hún var að sjálfsögðu sérstök eins og honum er einum lagið og kominn svolítill trúarlegur blær á málflutning hans í þessu máli sem er svolítið sérstakt vegna þess að það lýtur ekki beint að þeim ágæta málaflokki. En það sem ég vildi spyrja hv. þingmann út í, og reyndar verð ég að gera athugasemd við málflutning hans áðan eða hvort það var fyrr í dag þar sem hann kom aðeins inn á kaþólsku kirkjuna og Pólland. Mér fannst hann vega að pólska samfélaginu hér. Pólland er náttúrlega mjög merkilegt menningarríki og hér búa þúsundir Pólverja. Ég skynjaði á hans orðum að hann væri svolítið að ráðast gegn pólsku kirkjunni, kaþólsku kirkjunni. Mér finnst það ekki alveg við hæfi. En það sem ég vildi koma inn á og spyrja hv. þingmann að — ég sé að tíminn er búinn, þetta er afar stutt, en þá getur hv. þingmaður kannski brugðist við því sem ég sagði (Forseti hringir.) um pólsku kirkjuna, hvort það sé rétt skilið hjá mér að hann hafi verið að vega að kaþólsku kirkjunni og sérstaklega pólsku kirkjunni.