151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[21:34]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég treysti mér ekki út í þá greiningu á einni mínútu. Ég held að það séu ansi margir þættir sem ákvarði það, ekki síst einfaldlega neyðin sem er til staðar hjá fólki einhvers staðar annars staðar þar sem kerfin okkar koma málinu ekkert við, t.d. í Sýrlandi. Annað sem hefur áhrif á það er löggjöfin erlendis. Ég hygg að það séu gríðarleg mistök af hálfu Evrópuþjóða almennt að vera sífellt að reyna að hindra fólk í að komast til þeirra, auðvitað með þeim afleiðingum að þrýstingurinn fer annað. Þess vegna verður til ofurþrýstingur á einstaka stöðum, í nokkurra milljóna manna samfélagi eins og Svíþjóð, kannski níu milljón manns eða svo, þegar sami þrýstingur hefði getað orðið í 500 milljón manna samfélagi og hefði þá bara flætt út um allt og það hefði ekki verið neitt vandamál. Mistökin í mínum huga eru þau að dreifa ekki álaginu almennilega út um Evrópu. Það eru mistökin sem t.d. Danmörk og Svíþjóð og Evrópulöndin almennt eru búin að gera og hv. þingmenn Miðflokksins virðast vera að leggja til að við gerum líka. Þrýstingurinn verður enn þá til staðar. Þetta fólk mun enn þá þurfa hæli einhvers staðar. (Forseti hringir.) Þetta verður áfram vandamál, virðulegi forseti. Að mínu viti er þessi orðræða hv. þingmanna Miðflokksins einfaldlega ekki til þess fallin að leysa vandamálið. Vandamálið fer ekkert.