151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[21:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég hafði ætlað mér að fara í annað efnisatriði í þessari ræðu minni en ég vil aðeins bæta við það sem ég kom inn á í síðustu ræðu minni sem snýr að þessum fjárhagslegu þáttum. Það hefur komið fram í fyrri ræðum að lausn þessara mála sé að hafa þetta allt eins opið og nokkur kostur er. Sumir hafa gengið svo langt að tala því sem næst fyrir fullkomlega opnum landamærum sem ég held að yrði algjört ábyrgðarleysi og við myndum einfaldlega aldrei ráða við nema, eins og hv. þm. Brynjar Níelsson kom inn á áðan, þar með yrðu öll þau velferðarkerfi sem við höfum vanist aflögð í þeirri mynd sem við þekkjum.

Ástæða þess að mig langar að koma aftur inn á fjárhagslegu atriðin eru orð hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar hér í andsvari rétt áðan þar sem hv. þingmaður sagðist hafa skoðað málið og komist að þeirri niðurstöðu að það væri enginn sá kostnaðarauki í málinu sem nokkru næmi. Nú er ég ekki að vitna beint til orða þingmannsins heldur efnislega. Það væri enginn kostnaður sem neinu marki næði sem hv. þingmaður sæi að væri afleiddur af samþykkt þessa frumvarps. Ég efast nú um að margir treysti sér hreinlega til að halda fram þeirri skoðun en ég dreg það ekki í efa að hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson hafi lesið frumvarpið oftar en einu sinni. Ég hef kannski efasemdir um mat hv. þingmanns á fjárhagslegum áhrifum. Ég velti fyrir mér hvort það sé ekki tilefni til þess að hv. velferðarnefnd taki þetta til skoðunar. Ef raunin er sú að hér sé afgerandi meiri hluti fyrir samþykkt þessa máls þá ætti það ekki að vera vandamál að taka málið til skoðunar á milli 2. og 3. umr. og reyna að leggja eitthvert vitrænt mat á það hver kostnaðaráhrifin gætu orðið, teikna upp sviðsmyndir miðað við nokkrar mismunandi forsendur, því þetta er svo fljótt að hlaupa í tölur.

Við erum hér daginn út og daginn inn að takast á um einhver par hundruð milljóna og eins og við þekkjum var beinn kostnaður á síðasta ári rétt um 4 milljarðar. Það hefur komið fram hér í umræðunni að raunverulegur kostnaður, þegar tekið er tillit til álags á velferðarkerfið og þar fram eftir götunum, sé miklu nær því að vera 7–10 milljarðar en 4, þótt erfitt sé að greina það á dýptina. En þessar tölur eða stóra myndin liggur fyrir engu að síður. Mér þætti það skynsamlegt að hv. velferðarnefnd tæki málið til skoðunar milli 2. og 3. umr. og reyndi að færa okkur þingmönnum, sem höfum sannarlega efasemdir um að eitthvert vit sé í því kostnaðarmati sem hér liggur fyrir, eitthvert efni sem gæti róað okkur gagnvart þeim áhrifum sem við teljum líkleg af samþykkt þessa frumvarps. Þegar hver umsækjandi um alþjóðlega vernd, hælisleitandi, kostar að jafnaði 6 millj. kr. á ári, þá blasir við að þetta er fljótt að hlaupa í tölur. Það er ekki lengi gert, leyfi ég mér að fullyrða, að teikna upp sviðsmyndir um möguleg áhrif, bara út frá þróun til að mynda í ýmsum þeim löndum sem við best þekkjum til þegar kerfislegar breytingar hafa verið gerðar. Ég vil hvetja hv. fulltrúa í velferðarnefnd til að íhuga það hvort ekki sé rétt að kalla málið til nefndar milli 2. og 3. umr. til þess að leiða betur í jörðu þau sjónarmið sem ætti með réttu að hafa verið fjallað um af einhverju viti í 6. kafla greinargerðar frumvarpsins. (Forseti hringir.) Þar vantar auðvitað mikið upp á. Ég held að það væri málinu til bóta að menn gerðu atlögu að því að skýra þetta.