151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[21:41]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Í minni fyrri ræðu ræddi ég um fjármálahlið málsins. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að senda þau skilaboð út í samfélagið og alþjóðasamfélagið kannski allra helst að, eins og stendur í greinargerð með frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Frumvarpið felur í sér þá meginbreytingu að Fjölmenningarsetri er ætlað víðtækara hlutverk með tilkomu samræmdrar móttöku flóttafólks og því mikilvægt að efla stofnunina þannig að hún geti tekist á við þetta verkefni.

Nauðsynlegt er að stofnunin, sem staðsett er á Ísafirði, verði einnig með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu þar sem einstaklingar sem sækja um alþjóðlega vernd dvelja nær allir á höfuðborgarsvæðinu eða á Suðurnesjum. Fulltrúar Fjölmenningarseturs munu þurfa að hitta viðkomandi flóttafólk og leggja fyrir það tilboð um móttökusveitarfélag.“

Þarna kemur það fram sem við höfum verið að deila á. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga að fá sambærilega þjónustu og kvótaflóttamenn. Það mun auka kostnaðinn að miklum mun og miklu meira heldur en þetta frumvarp eitt og sér gerir ráð fyrir þar sem er einungis gert ráð fyrir fjölgun um einhver tvö störf í Fjölmenningarsetri. Það er alrangt að okkar mati. Innihald okkar málflutnings er í stuttu og einföldu máli þetta: Þarna er verið að senda út skilaboð, röng skilaboð til alþjóðasamfélagsins og flóttamanna sem munu taka þá ákvörðun að stefna til Íslands frekar en annarra landa vegna þess að hér sé allur aðbúnaður miklu betri og annar en annars staðar er í boði. Þetta mun auka á vandann.

Vandinn er nægur fyrir. Hann felst í því að við erum með útgjöld upp á nokkra milljarða á hverju einasta ári til málaflokksins og aldrei er fyrirséð, herra forseti, fyrir fram hversu miklir fjármunir eru veittir í málaflokkinn. Það er aldrei fyrirséð. Við sitjum og vonum að vandinn minnki, að þeim fækki sem sækja hér um alþjóðlega vernd, en ár eftir ár höfum við horft upp á það að vandinn hefur aukist. Útgjöldin hafa aukist og í mjög mörgum tilvikum er þeim aðilum sem sækja um alþjóðlega vernd hér vísað frá sem þýðir í raun að umsóknir þeirra eru tilhæfulausar. Þessi útgjöld eru með þeim hætti að við getum ekki samþykkt þau. Við getum ekki samþykkt að hér séu stjórnlaus útgjöld til eins málaflokks umfram alla aðra málaflokka sem við ræðum hér þar sem er aðhaldsstefna og markmið og fleira og fleira sem þarf að taka tillit til. En í þessum málaflokki horfir það öðruvísi við. Þar er þetta opið. Við vitum í raun ekki fyrir fram hversu miklir fjármunir fara til málaflokksins vegna þess að við vitum ekki hversu margir koma hingað og biðja um alþjóðlega vernd. Með frumvarpinu teljum við að verið sé að auka á vandann og senda röng skilaboð út í alþjóðasamfélagið.

Ég ætlaði líka að tala um ýmislegt annað. Ég ætla að tala um stefnuna líka og gerði það áðan. Hér á Íslandi virðist ekki vera nokkur stefna í þessum málaflokki. Stjórnmálaflokkarnir hafa enga stefnu í þessum málaflokki. Píratar hafa stefnu, jú, það er rétt, þeir hafa stefnu. Þeir vilja bjóða sem allra, allra flestum hingað til lands, hafa raunverulega opið og þá hverfi vandinn. Það er þeirra lausn ef ég skil sjónarmið þeirra rétt.

Ég ætla einnig að tala um, og var byrjaður á því í minni fyrri ræðu, skipulagða glæpastarfsemi. Fyrir nokkrum dögum var samþykkt hér á þingi beiðni mín um skýrslu frá hæstv. dómsmálaráðherra, að hún myndi greina þinginu frá því hvað hafi verið aðhafst hvað varðar skipulagða glæpastarfsemi undanfarin ár eftir að greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur margsinnis og ítrekað bent á þá hættu að skipulögð glæpastarfsemi fari vaxandi hér á landi og að af því stafaði mikil hætta í samfélaginu ef hún fengi að vaxa óáreitt eins og hefur verið undanfarin ár. Skýrslan gerir ráð fyrir að ráðherra greini þinginu frá því hvort lögð hafi verið áhersla á að fjölga lögreglumönnum sem rannsaka skipulagða glæpi og styðja betur við störf þeirra. Hún á einnig að fjalla um hvort áhersla hafi verið lögð á farþegalistagreiningar við landamæraeftirlit, sem greiningardeildin hefur verið að benda á í sínum skýrslum, hvort ráðherra hafi gripið til aðgerða í því sambandi, og hvort rannsóknarúrræði lögreglu hafi verið rýmkuð eða þeim fjölgað. Í skýrslum greiningardeildarinnar hefur einmitt verið bent á að rannsóknarúrræði hér á landi séu þrengri heldur en víða annars staðar og þar séu hendur lögreglunnar bundnar að miklu leyti. Við óskum eftir því að hæstv. ráðherra greini okkur frá því hvort hún hafi farið í einhverjar aðgerðir hvað þetta varðar. Einnig óskum við eftir skýrslu um það hvort hæstv. ráðherra hafi farið í aðgerðir til að auðvelda brottvísanir erlendra aðila sem verða uppvísir að afbrotum sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi.

Við spyrjum einnig þessarar gömlu spurningar um hvort almennum lögreglumönnum hafi verið fjölgað. Lögreglan hefur kallað eftir því áratugum saman að fjölga almennum lögreglumönnum. Það hefur komið niður á frumkvæðiseftirliti til lögreglu sem er mjög mikilvægur þáttur í því að stemma stigu við þeim tegundum afbrota sem þessir glæpahópar stunda kannski hvað mest, þ.e. fíkniefnasölu og -framleiðslu og ýmislegt annað. Brot eins og misneyting og mansal eru brot sem uppgötvast yfirleitt ekki nema að frumkvæði lögreglu komi til, þ.e. að hún taki upp og rannsaki málin. Þetta byggist yfirleitt ekki á tilkynningum. Frumkvæðiseftirlit lögreglu er því mjög mikilvægt og við óskum eftir því að hæstv. ráðherra greini okkur frá því hvort hún hafi eflt frumkvæðiseftirlit lögreglu og fjölgað almennum lögreglumönnum.

Einnig spyrjum við hæstv. ráðherra að því hvort gripið hafi verið til aðgerða til að koma í veg fyrir að þeir sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi, og þá komum við svolítið inn á þetta mál, kunni sökum bágrar félagsstöðu — eins og margir af þeim aðilum eru sem koma hingað, þeir hafa mjög bága félagsstöðu — að sæta misnotkun og kúgun af ýmsum toga, svo sem mansali, og hvort hæstv. ráðherra hafi gripið til einhverra aðgerða til að koma í veg fyrir það hér eða hvort einhverjar aðgerðir séu áformaðar í því sambandi til að vinna gegn slíku. Flóttafólk er að sjálfsögðu í mjög bágri stöðu og auðvelt fyrir aðila, sem annaðhvort hjálpa þeim að koma til landsins eða taka á móti þeim, að misnota stöðu þeirra hér á landi ekkert síður en erlendis. Við óskum eftir því að þinginu verði greint frá því hvort ráðherra hafi gripið til einhverra aðgerða í því sambandi.

Loks höfum við óskað eftir því að ráðherra upplýsi hvort hún hafi gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að glæpasamtök misnoti opinbert þjónustukerfi, eins og segir í skýrslu greiningardeildarinnar, sem er þá liður í skipulagðri starfsemi. Þar er átt við bótakerfi, vinnumiðlun, móttökukerfi fyrir flóttafólk og kerfi sem heldur utan um umsækjendur sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi og ýmsa félagslega aðstoð sem stendur til boða. Greiningardeild lögreglunnar hefur heimildir fyrir því að þessi glæpasamtök sum hver misnoti þessi kerfi. Auðvitað er mikilvægt að við fáum það upplýst í ítarlegri skýrslu frá hæstv. ráðherra. Við getum ekki verið þekkt fyrir það að leggja alla þessa fjármuni í kerfi sem síðan er misnotað af miður vönduðum glæpahópum, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir. Það gefur augaleið að við getum ekki sýnt ábyrga fjármálastefnu og horft upp á það gerast.