151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[22:02]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Þegar frá var horfið var ég byrjaður að setja stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar sem birtist í þessu máli í samhengi við þróunina annars staðar á Norðurlöndum og útskýra að það frumvarp sem við ræðum hér er til þess fallið að setja stefnu íslenskra stjórnvalda út á jaðarinn. Þetta er ekki meginstefna miðað við þróunina annars staðar í nærumhverfi okkar. Þetta er jaðarstefna. Það sjáum við ekki hvað síst á þróuninni í Danmörku en einnig nú síðast í Svíþjóð þar sem hefur myndast bandalag um að gera breytingar, bandalag sem nær frá miðju til hægri í tilviki Svía. Reyndar verður að geta þess að sænskir jafnaðarmenn, undir forystu Stefáns Löfvens forsætisráðherra, hafa einnig sagt að núverandi fyrirkomulag hafi brugðist en þeir vilja gera aðrar breytingar. Í öllum tilvikum er þó um að ræða þveröfuga stefnu við það sem ríkisstjórn Íslands boðar hér.

Til að setja þetta í samhengi held ég að sé ágætt að líta einfaldlega á, byrja á því a.m.k., stefnu danskra jafnaðarmanna eins og hún birtist á prenti frá þeim. Ég ætla að lesa nokkrar setningar til að byrja með úr inngangsorðum í stefnu danskra jafnaðarmanna í þessum málaflokki og minni á það, og það er lykilatriði í þessu samhengi, að þessi stefna byggist á því að farið verði í þveröfuga átt við það sem til stendur hér, þar sem reynt verður að beina flóttamönnum í löglegan, öruggan farveg en koma í veg fyrir eða hindra að menn leiti þeirra ráða sem íslenska ríkisstjórnin ýtir undir og getur því miður allt of oft falið í sér að fólk leiti til hættulegra glæpasamtaka. Inngangsorð í stefnu danskra jafnaðarmanna hljóða svo, með leyfi forseta:

„Danmörk verður að geta ákveðið sjálf hversu mörgum útlendingum sem ekki eru vestrænir verður tekið á móti. Við getum ekki gert það í dag. Jafnaðarmenn vilja breyta þessu með því að taka upp árlegt þak og við viljum koma upp móttökustöð utan Evrópu.“

Svo taka þeir fram að þetta verði að sjálfsögðu að gera innan ramma alþjóðasamninga og með mannúð að leiðarljósi sem þeir skýra svo nánar í framhaldinu, og svo segir:

„Það ætti ekki lengur að vera hægt að leita skyndihælis í Danmörku.“ — Þetta segja danskir jafnaðarmenn, herra forseti. — „Í staðinn verða Danir að taka á móti kvótaflóttamönnum.“

Með öðrum orðum, hér er strax í upphafi lögð áhersla á að þeir sem vilji koma til Danmerkur og leita hælis eigi að fara eftir lögformlegum og öruggum leiðum. Svo er stuttlega rakin saga danska velferðarkerfisins og á hverju það byggist og sett í samhengi við mikilvægi þess að þeir sem flytjast til landsins þurfi sjálfir að laga sig að menningu og gildum Danmerkur til að geta tekið þátt í því kerfi sem er hannað til að tryggja velferð allra. En þá segir:

„Allt of margir hafa farið til Danmerkur án þess að verða hluti af Danmörku. Það ýtir ekki undir samheldni.“ — Og svo: „Þegar margir erlendir innflytjendur, ekki síst konur, eru heima í staðinn fyrir að vinna þýðir það ekki aðeins að þeir eigi erfiðara með að aðlaga sig dönsku samfélagi heldur hefur það líka fjárhagslegar afleiðingar. Samkvæmt fjármálaráðuneytinu voru nettóútgjöld hins opinbera vegna erlendra innflytjenda og afkomenda 33 milljarðar danskra króna árið 2014.“ (Forseti hringir.)

Herra forseti. Nú slitnar samhengið í því sem ég var byrjaður að lesa en ég skil að hæstv. forseti getur ekki bætt við þær fimm mínútur sem ég hef til ráðstöfunar í þessari umferð.