151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[22:08]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fór hérna aðeins í ræðu áðan yfir það sem ég tel vera fílinn í herberginu og það sem liggi að baki ótta margra á Íslandi við það að hingað komi „of margir“ hælisleitendur eða of margir kvótaflóttamenn, of margir útlendingar almennt. Það er ótti við einhvers konar menningarágreining eða að fólk sem komi hingað aðlagist ekki samfélaginu. Viðbrögð annarra hv. þingmanna Miðflokksins við ræðu minni áðan var svolítið í þeim takti að hér væri enginn að tala um trúarbrögð, hér væri enginn að tala um múslima. Hvers vegna er þessi Pírati að koma hingað upp og tala um trúarbrögð sem hann á sama tíma predikar af þvílíkri trúarinnlifun að eigi ekkert heima í stjórnmálum? En ég velti því fyrir mér í ljósi ræðu hv. þingmanns hvaða menningarhópa hann er að tala um, hvaða fólk það sé sem hafi ekki aðlagast, að hans sögn, hafi ekki tekist að aðlagast nógu vel, vegna þess að það er bara einn menningarhópur sem er áberandi í allri umræðu um þessi mál og það eru múslimar, kannski sér í lagi kennisetningar íslamskrar trúar og áhyggjur af áhrifum hennar á þjóðfélagið, stjórnkerfið og menningu. Auðvitað eru önnur menningaráhrif líka en þau koma væntanlega úr sömu átt. Eru einhverjir aðrir hópar sem hv. þingmaður veit um sem gætu verið hluti af þeim hópi sem hv. þingmaður fjallaði um í samhengi við Danmörku?