málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Mér þykir túlkun hv. þingmanns á ræðu minni afskaplega sérkennileg ef hann skynjaði í henni að ég væri að ýta undir fordóma. Ég hugsa að setningin sem ég hafi ítrekað hvað oftast hér í dag og í þessari umræðu sé að fólk sjái ekki trúarbrögðin sem það aðhyllist. Það var jú heili punkturinn. Það var inntakið í því sem ég nefndi, einnig um íslamska trú, ég get gagnrýnt hana í bak og fyrir og af þokkalegri þekkingu, þótt ég segi sjálfur frá. En það þýðir ekki að ég ætli að vera á móti því að múslimar komi til landsins. Það var punkturinn. Það voru skilaboðin. Það er alveg sama með kaþólska trú; öll öfl og allar stofnanir sem berjast gegn frjálslyndum lýðræðisgildum eru að mínu mati vond og ég ætla að gagnrýna þau. Þar eru trúarstofnanir eins og kaþólska kirkjan, sennilega valdamesta trúarstofnun í heiminum, ekki of heilagar til að fá á sig þá gagnrýni. Kaþólska kirkjan, hvort sem fólki líkar það betur eða verr, hvort sem fólk aðhyllist þá trú eða ekki, hefur unnið markvisst og meðvitað í gegnum alla sína tíð gegn ákveðnum frjálslyndum lýðræðisgildum eins og til að mynda lýðræðislegri hugsun, reyndar sjálfstæðri hugsun almennt á sínum tíma, og jafnrétti kynjanna, gegn réttindum samkynhneigðra og barist gegn smokkanotkun víða þar sem HIV geisar. Og, virðulegi forseti, það að kaþólska kirkjan sé elskuð af einhverju fólki er engin afsökun. Mér finnst ekki sanngjarnt að mála þessa réttmætu gagnrýni, byggða á sögulegum, uppflettanlegum staðreyndum, sem einhverja andúð gegn fólkinu sem aðhyllist trúna sjálfa. Það er ekki þannig og það var heili punkturinn í ræðu minni, virðulegi forseti. Ef hv. þingmaður gerir ekki greinarmun á trúarbrögðum og fólkinu sem aðhyllist þau þá er það kannski eitthvað sem hv. þingmaður þarf sjálfur að athuga frekar en ég.