málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Nú er ég að reyna að skilja hv. þingmann ekki með ósanngjörnum hætti, en ég skil hann þannig að ef maður gagnrýnir ágang trúarstofnana á kvenréttindi og réttindi samkynhneigðra þá sé maður ekki að virða rétt fólks til trúar eða trúarskoðana. Það er ekki þannig, virðulegi forseti. Það að virða rétt fólks til að hafa skoðun þýðir ekki að fólk þurfi að halda aftur af gagnrýni á eitthvað jafnt fjarstæðukennt og ágang á kvenréttindi og réttindi samkynhneigðra, virðulegur forseti. Stofnanir eru ekki yfir það hafnar að fólk tali um það sem þær gera. Ef kaþólska kirkjan vill ekki sitja undir tali um að hún gangi á réttindi samkynhneigðra og kvenna má hún bara gjöra svo vel að hætta því. Og páfinn er ekki of heilagur til þess að gera það. Engin manneskja eða stofnun er of heilög til þess, virðulegur forseti. Í því felst tjáningarfrelsið sem mér heyrðist hv. þingmaður vera að reyna að verja, tjáningarfrelsið sem, meðan ég man, hv. þingmaður gat ekki greitt atkvæði með þegar við fjarlægðum bann við guðlasti úr almennum hegningarlögum á sínum tíma, að frumkvæði þess sem hér stendur.
Mér þykir ræða hv. þingmanns og gagnrýni á málflutning minn skrýtin, svo ekki sé meira sagt. En það er ekki aðalpunkturinn hjá mér, virðulegi forseti. Aðalatriðið er að fólk er ekki trúarbrögð. Ég þekki stjórnmálamenn sem eru kaþólskir og berjast mjög mikið fyrir réttindum samkynhneigðra og kvenna. Það er heili punkturinn. Fólk er ekki trúarbrögðin sem það aðhyllist. Það er engin árás á fólk eða þjóðerni, guð minn góður, að gagnrýna einhverjar trúarkennisetningar eða trúarstofnanir. Það er fráleitt, virðulegi forseti, algerlega út í hött. Fyrir utan auðvitað það að mér fannst hv. þingmaður tala svolítið eins og tilteknar trúarstofnanir eða trúarbrögð væru hreinlega þjóðerni og ég get ekki kvittað undir það, virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Fólk er fjölbreyttara en það, sem betur fer. Samfélög eru ekki svona einsleit, við erum ekki svona einföld.