skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Ég hef heyrt mikið spurt um það síðustu ár hvers vegna þetta ákvæði sé ekki gert varanlegt. Það er sífellt verið að framlengja þetta og alltaf finnast góðar ástæður til en það virðist eins og það sé hreinlega ekki útrætt hvort fólk vilji að þetta sé varanlegur hluti af þessu kerfi, heildarhugsuninni á bak við það hvernig við tryggjum fólki afkomu þegar það er komið á aldur og hættir að vinna. Getur hæstv. ráðherra kannski deilt með okkur helstu álitaefnum, ef sú skoðun hefur komið upp, sem ég geri ráð fyrir að hafi komið upp, alla vega óformlega, í sambandi við þann möguleika að gera þetta úrræði varanlegt? Ég átta mig auðvitað á því að þetta er ekki gagnrýnislaust. Þarna er skattfrelsi sem kannski sumum finnst ekkert sanngjarnt, það gæti verið einn vinkillinn. En aftur á móti er ég sjálfur þeirrar skoðunar að það að hafa húsnæði er þörf sem verður áfram til staðar þegar fólk hættir að vinna og það að gera fólki kleift að vera frjálst frá skuldum á þeim aldri er líka eftirsóknarvert markmið. Þess vegna þykir mér áhugaverð hugmyndin og umræðan um að gera þetta ákvæði varanlegt þannig að mér þætti vænt um að heyra allar hugleiðingar sem hæstv. ráðherra getur deilt með okkur í þeim efnum.