151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

768. mál
[14:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Til að svara öllum þessum álitamálum þá þurfum við í raun og veru að hafa dálítið skýra sýn á séreignarsparnaðarfyrirkomulagið, þennan viðbótarlífeyrissparnað, og spyrja okkur í hvaða tilgangi því kerfi var komið á fót. Ef við rekjum okkur til baka þá er það alveg ljóst að þetta átti að vera þriðja stoðin í lífeyrissparnaði en ekki sérstakt húsnæðisöflunarúrræði. En m.a. vegna þess að lífeyrissparnaður hefur verið mikill á Íslandi og vegna þess að húsnæðisskuldir voru orðnar sjálfstætt efnahagsvandamál þá opnuðum við tímabundið fyrir þennan möguleika. Ef við viljum taka umræðu um að gera það kerfi meira varanlegt þurfum við um leið að taka breiðari umræðu um þessa þriðju stoð.

Varðandi gallana sem hv. þingmaður nefnir hér sérstaklega þá myndi ég kannski helst vilja svara því með því að benda á annað frumvarp sem liggur hér í þinginu og fjallar um tilgreinda séreign. Í tilgreindu séreigninni er þessari gagnrýni mætt fyrir hönd þeirra sem hafa lægri tekjurnar vegna þess að með tilgreindri séreign, sem er ný prósenta í lífeyrissparnaði upp á 3,5%, er opnað fyrir þann möguleika að sá sem ekki hefur getað nýtt að fullu rétt sinn til úttektar á séreignarsparnaði geti bætt sér það upp með tilgreindu séreigninni og fengið að taka hana og ráðstafa inn á húsnæðið með skattleysi. Þannig náum við að jafnsetja betur hópana sem hv. þingmaður var að lýsa áhyggjum af. Það er hugsunin á bak við tilgreindu séreignina og nýtingu hennar í þessa þágu. En síðan eru fleiri atriði í því máli sem greinilega eru umdeild hér í þinginu og spurning er hvernig það mál fer á endanum.