skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegur forseti. Ég tek undir að það þyrfti að vera eitthvert varanlegt úrræði í þessu samhengi. Staðan á fasteignamarkaði í dag er alveg fáránleg. Íbúðirnar seljast ekki á uppsettu verði heldur langt yfir uppsettu verði og jafnvel svo hátt yfir uppsettu verði að viðkomandi sem ætlar að bjóða í íbúð og er með séreignarsparnað og sparnaðinn sinn ræður ekki einu sinni við umframhækkunina. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að þetta úrræði gagnist þá eingöngu þeim sem eru með virkilega með góð laun og hafa góðan bakhjarl. Ég sé t.d. ekki hvernig einstaklingur á að geta nýtt sér þetta. Hann mun aldrei ná að safna upp í útborgun vegna þess að hækkunin á markaði er svo rosalega mikil. Fyrir utan það er hann í þeirri stöðu að ef hann ætlar t.d. að taka hlutdeildarlán eru ekki til íbúðir. Síðan er það nýjasta að nú eru teikn á lofti um að verðbólgan sé komin af stað og byggingarkostnaður er að fara að stórhækka vegna þess að timbur hefur hækkað mikið og útlit er fyrir að það hækki um 30–50%. Kostnaðurinn á því eftir að fara enn þá meira úr böndunum. Þannig að ég spyr: Er hæstv. fjármálaráðherra með einhverja lausn fyrir einstaklinga sem ætla að reyna að kaupa, eða þá sem eru á lægstu launum, að nýta sér þetta?