151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

768. mál
[14:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er að sjálfsögðu rétt hjá hv. þingmanni að þegar mikil spenna er á húsnæðismarkaði og eignir seljast ítrekað yfir ásettu verði er það mikill seljendamarkaður og kaupendur eru ekki í þeirri stöðu að geta valið og hafnað. Það á jafnt við um alla þátttakendur á þeim markaði. Hins vegar hljótum við að vera sammála því að kannski einmitt vegna þess að slíkt ástand ríkir á markaðnum er það að hafa þennan valkost til þess fallið að létta undir með þeim sem ætlar inn á húsnæðismarkaðinn. Hversu mikið fólk getur treyst á þann valkost fer jú eftir efnum og aðstæðum hverju sinni. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að minna er til skiptanna, úr minna að spila eftir því sem launin eru lægri þar sem hér er um ákveðnar prósentur af laununum að ræða sem fara í iðgjaldagreiðslur. En það er ekkert annað lögmál en gildir almennt um launin sjálf. Sá sem hefur hærri laun er líklegri til þess að standast greiðslumat á dýrari eign. Hér vísa ég því til þess sem áður kom fram í máli mínu um frumvarp sem ég hef áður mælt fyrir og varðar hina svonefndu tilgreindu séreign, aðferðafræði sem er hugsuð fyrir tekjulægra fólk til að nýta nýlega umsamdar kjarabætur til handa fólki á almenna markaðnum sem þá nýtur 15,5% í iðgjaldagreiðslur sem áður voru 12%. Í því frumvarpi er rætt um að þessi nýju 3,5% til viðbótar geti gagnast.