skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin. Í sambandi við þessa tilgreindu séreign hefur verið talað um að hún fari beint til lífeyrissjóðanna. Er þá ekki alveg sjálfsagt að viðkomandi einstaklingur fái að ráða hvert þessi tilgreinda séreign fer, í hvernig ávöxtun og hvernig hann ráðstafar henni til ávöxtunar?
Síðan væri líka gott að fá að vita hver stefna ríkisstjórnarinnar er í sambandi við þensluna á húsnæðismarkaði. Er ríkisstjórnin að gera eitthvað til að spyrna við? Þessi ákvæði sem verið er að setja inn eiga að gilda til júní 2023. Er eitthvað sem tryggir að innan þess tíma verði ástandið á íbúðamarkaði eitthvað betra? Ég sé engin teikn um það.
Það er líka annað, það er ekki einu sinni verið að tala um að taka húsnæðið út úr vísitölunni. Oft hefur verið gerð krafa um það vegna þess að það hefur líka gífurleg áhrif á verðbólguna. Er eitthvað slíkt á döfinni hjá ríkisstjórninni til að verjast því ástandi sem við virðumst vera að ganga inn í núna, óðaverðbólgu og þenslu? Hvað er ríkisstjórnin að gera í því? Hvaða stefnu hefur hún?