skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum er fjallað í skýrslum sem félagsmálaráðherra hefur tekið saman og ég hygg að verði gerðar opinberar á næstu dögum, þ.e. að með skýrslunni verði veitt yfirlit yfir þau fjölþættu úrræði sem ríkisstjórnin hefur kynnt til sögunnar til að létta undir með fólki. Við höfum afgreitt margt af því hér í gegnum þingið. Ég nefni hlutdeildarlánin svonefndu sem eitt af stóru úrræðunum og mikla kerfisbreytingu í því efni. Við höfum sömuleiðis verið að gera margs konar aðrar breytingar sem eru allar miðaðar að því að lækka þröskuldinn inn á húsnæðismarkaðinn. En þrátt fyrir allar aðgerðir stjórnvalda, sem eru oft og tíðum dálítið sértækar, held ég að engin ein aðgerð hafi létt jafn mikið undir með fólki eins og sú að skapa hér umhverfi fyrir lægri vexti og meiri stöðugleika. Lækkun vaxta, lægstu húsnæðisvextir í sögunni, er auðvitað mesta kjarabótin fyrir heimilin.
Svo er það húsnæðismarkaðurinn, hvernig getum við reynt að hafa áhrif á hann? Verðum við ekki bara að vera sammála um að á húsnæðismarkaði mun verð á endanum ráðast af framboði og eftirspurn? Hér koma nokkrir grundvallarþættir alltaf til sögunnar. Það er byggingarkostnaðurinn, sem hv. þingmaður kom inn á, en kaupmáttur heimilanna skiptir líka máli. Eftir því sem heimilin hafa meiri kaupmátt eru reistar betri íbúðir og jafnvel stærri og af meiri efnum. Og eftir því sem fleiri bítast um íbúðirnar, þeim mun meiri spenna myndast á markaðnum. Okkar hlutverk, í samvinnu við sveitarfélögin, er m.a. að sjá til þess að jafnvægi sé á milli framboðs og eftirspurnar.