151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

ferðagjöf.

776. mál
[15:55]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020. Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lögð til endurnýjun á ferðagjöf stjórnvalda með gildistíma frá 1. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021. Í öðru lagi er lögð til breyting þess efnis að heildarfjárhæð stuðnings til tengdra rekstraraðila geti að hámarki numið 260 millj. kr. Frumvarpið felur ekki í sér breytingu á gildistíma eldri ferðagjafa sem voru gefnar út á liðnu ári. Þær falla eftir sem áður niður um næstu mánaðamót eins og til stóð en hægt er að nýta þær fram að þeim tíma, til 31. maí.

Með því að gefa út ferðagjöf að nýju fyrir komandi sumar er stutt enn frekar við ferðaþjónustufyrirtæki um land allt á komandi mánuðum. Í gildandi lögum um ferðagjöf er stjórnvöldum veitt heimild til útgáfu ferðagjafar til einstaklinga með íslenska kennitölu sem fæddir eru árið 2002 eða fyrr til notkunar hjá fyrirtækjum sem eru skilgreind í 2. mgr. 1. gr. laganna. Tildrög laganna má rekja til neikvæðra áhrifa vegna útbreiðslu kórónuveiru á starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja hérlendis. Takmarkanir á ferðalögum sem gripið hefur verið til hér á landi og erlendis til að hemja útbreiðslu veirunnar hafa sem kunnugt er haft gríðarleg áhrif á fyrirtæki og starfsfólk í ferðaþjónustu og tengdum atvinnugreinum. Ríkisstjórnin hefur gripið til margvíslegra ráðstafana til að draga úr tjóni vegna faraldursins og skapa öfluga viðspyrnu í kjölfar hans en með lögum um ferðagjöf og nú tillögu um endurnýjun ferðagjafar er markmiðið að bregðast tímabundið við neikvæðum áhrifum faraldursins á fólk og fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu.

Virðulegi forseti. Ætlaðir fjármunir til ferðagjafar samkvæmt fjáraukalögum fyrir árið 2020, sbr. lög nr. 36/2020, eru samtals 1,5 milljarðar kr. Eins og ég kom inn á í upphafi ræðunnar munu ónýttar ferðagjafir útgefnar árið 2020 samkvæmt gildandi lögum falla niður um næstu mánaðamót eins og til stóð, óháð því frumvarpi sem hér er til umræðu. Áætlað er að um 650 millj. kr. verði enn þá til ráðstöfunar af fyrri ferðagjöfinni þegar gildistími hennar rennur út í lok mánaðarins. Til viðbótar þeim fjármunum er lagt upp með að veita 750 milljónir til viðbótar í endurnýjaða ferðagjöf. Umfang hennar er því samtals áætlað um 1,4 milljarðar, verði hún nýtt til fulls.

Frá gildistöku laganna í júní 2020 til 10. apríl sl. sóttu um 199.000 einstaklingar ferðagjöfina af þeim 280.000 sem eiga rétt á henni. Sóttar ferðagjafir nema þannig samtals tæplega milljarði króna en þar af hafa um 787 milljónir verði nýttar af u.þ.b. 139.000 einstaklingum. Enn eru því um 700 millj. kr. til ráðstöfunar af því fé sem veitt var í ferðagjöfina. Samanlagður fjöldi fyrirtækja sem hafa tekið þátt í verkefninu er 812. Þegar horft er til svæðisbundinnar skiptingar fjármagns liggur fyrir að um 293 millj. kr. hafa verið nýttar hjá ferðaþjónustufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa um 119 millj. kr. verið nýttar hjá fyrirtækjum á Suðurlandi, 83 millj. kr. á Norðurlandi eystra, 48 millj. kr. á Vesturlandi, 35 millj. kr. á Suðurnesjum, 28 millj. kr. á Austurlandi, 15 millj. kr. á Norðurlandi vestra, 15 millj. kr. á Vestfjörðum og loks 151 millj. kr. hjá fyrirtækjum sem starfa á landsvísu.

Eins og ég kom inn á áðan er áætlað að um 650 millj. kr. verði enn til ráðstöfunar af fyrri ferðagjöf þegar gildistími hennar rennur út. Fyrir því geta verið ýmsar ástæður sem ekki er ætlunin að rekja hér, en með endurnýjun ferðagjafar er ljóst að þeir einstaklingar sem nýttu sér fyrri ferðagjöf fá tækifæri til að gera það aftur núna í sumar og stuðla þannig að eflingu innlendrar ferðaþjónustu auk þess sem þeir sem ekki nýttu ferðagjöfina hafa að sjálfsögðu tækifæri til að nýta þá nýju á gildistíma hennar í sumar. Með þessu er ferðaþjónustufyrirtækjum hérlendis veitt enn frekari viðspyrna yfir sumarið 2021.

Frumvarpið kallar ekki á breytingar á öðrum lögum og hefur verið unnið í góðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Frumvarpið felur í sér framlengingu á ríkisaðstoðarkerfi sem þegar hefur verið samþykkt af Eftirlitsstofnun EFTA. Framlenging á gildistíma og hækkun á hámarksfjárhæð stuðnings til hvers rekstraraðila er einnig tilkynningarskyld og háð samþykki stofnunarinnar en óformlegt samráð var haft við stofnunina við vinnslu frumvarpsins og fortilkynning send henni í aprílmánuði. Gerður er fyrirvari um samþykki stofnunarinnar hvað viðkemur lögmætri ríkisaðstoð.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar til umfjöllunar.